16.öld - yfirlit B framhald
16.öld - yfirlit B framhald
Gissur átti harma að hefnahefndi sín þó eiorsökina - ef skal nefna,ei var Guðrún mey.
Heimildir og samhengi
Auk Guðrúnar Gottskálksdóttur, heitmeyjar Gissurar Einarssonar biskups, (þríburar) þá fiflaði dómkirkjupresturinn, séra Eysteinn Þórðarson, einnig móður hans, Gunnhildi Jónsdóttur, þá um sextugt, á meðan Gissur var ytra.
Bræður Gissurar gengu í skrokk á séra Eysteini í Skálholti, en Gissur stöðvaði leikinn áður en varanleg örkuml hlytust af.
Kunnastir þeirra bræðra Gissurar eru: Þorlákur, sm. á Núpi, faðir Gissurar, sm. Núpi, d.1597, fyrri manns Ragnheiðar Pálsdóttur (Staðarhóls) móður Brynjólfs biskups Sveinssonar.
Og séra Jón, prestur m.a. í Reykholti, sjá1569 og 1664.
Einar faðir Gissurar og þeirra bræðra var Sigvaldason Gunnarssonar, laangalífs, en sá mun hafa verið töluvert yfir 2m á hæð og börn hans hávaxin. Sjá ummæli Espólíns við 1652.