Þjóðverjarnir þjást og gráta

Þjóðverjarnir þjást og grátaþegar Danir beita krókilla fengna árabátaOtti Stígs af þýskum tók.

Glúmur Gylfason · 1544

Heimildir og samhengi

Höfuðsmaður Danakóngs, Otti Stígsson, herjar á Þjóðverja og tekur af þeim 45 báta, sem þeir hafa að líkindum náð af Englendingum, e.t.v. í Grindavík 1532.
Hamborgarar höfðu að sögn ráðið lögum og lofum í Hafnarfirði á fyrri hluta 16. aldar, þ.e., fram að þessu, reist þar kirkju 1535 og kunn eru nöfn fjögurra lútherskra presta þar, en Hamborg var þá orðin lúthersk borg. Allt var þetta gegn Piningsdómi frá 1490 um bann við vetursetu útlendinga, en héldu uppi í Hafnarfirði þýskum aga og m.a. náðu þeir Christian Schriver (Kristjáni Skrifara) á sitt vald og fóru illa með.
Þýskir kærðu bátatökuna til alþingis, en kom fyrir ekki og urðu bátarnir uppistaðan í útgerð kóngs á Suðurnesjum.

Vefur (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir