Næstelsta mannsins starf er stríð
Næstelsta mannsins starf er stríðstundað af körlum ár og síðboða nú knektarnir landsins lýðað liðin sé andkristin páfans tíð.
Heimildir og samhengi
26 kaþólskir prestar úr Skálholtsstifti sóru á Þingvöllum eið að lútherskri kirkjuskipan Kristjáns III. að viðstöddum vopnuðum kóngsins knektum, þ.e., málaliðum.
Prestar í stiftinu hafa verið á annað hundrað samtals.
Þetta gerist sama árið og Guðbrandur Þorláksson fæðist, sem varð Hólabiskup 1571 til 1627.
Sjá nánar um siðbótina við 1550 og 1551 og 1540
Tilvísun: Guðbrandur Jónsson: Herra Jón Arason, ævisaga, bls. 191.
Der Spiegel - Geschichte, 5. hefti 2023, bls. 3: ,,Söldner - seien wohl ,,das zweitälteste Gewerb der Welt"".
Söldner: málaliði / knekt.
Í hita leiksins kallaði Lúther páfann antíkrist og brenndi bannfæringarbréf hans.
Nýlega varaði páfi, Francesco, við og vitnaði í Jóhannes Guðspjallamann um að meðal vor væru þeir sem dýrkuðu sjálfa sig en skeyttu ekki um kærleiksboðskap Krists og nefndi postulinn slíkt antíkrist. Sjá slóð:
Vefurtest.sanfrancescopatronoditalia.it (opnast í nýjum flipa)