Lútherskri stefnu áfram ýtt

Lag Faðir vor sem á himnum ert

Lútherskri stefnu áfram ýttaf ungum prestum siðbót flýttúr Skálholtsfjósi telst það títtað testamenti nýtt er þýttÖgmundi var þó um það lítten Oddi þar á fingrum hlýtt.

Glúmur Gylfason · 1540

Heimildir og samhengi

Sagt er að Oddur Gottskálksson hafi unnið í Skálholtsfjósi að þýðingu Nýja testamentisins til þess að Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski Skálholtsbiskupinn, yrði þess ekki var. Eftir Oddi er haft: „Jesús, lausnari vor, var lagður í einn asnastall en nú tek ég að útleggja og í móðurmál mitt að snúa orði hans í einu fjósi.“
Nýja testamenti Odds var prentað í Hróarskeldu 1540.
Í kaþólsku var biblían á latínu og prestum einum ætlað að túlka texta hennar fyrir alþýðu.
Íslenskir námsmenn í Hamborg, þ.á m. Gissur Einarsson, síðar fyrsti lútherski biskup íslenskur, hrifust af kenningu Lúthers. Auk þeira Odds má nefna Gísla Jónsson, síðar biskup og Pétur Einarsson (Gleraugna P.).

Guðbrandur Jónsson: Herra Jón Arason, bls. 21: ,,Enda þótt leikmenn væru áhangendur hins forna siðar, hafði þeim þó mörgum eðlilega blöskrað sá óhugnanlegi ofvöxtur sem hlaupinn var í hið veraldlega vald kirkjunnar, svo að þeir snerust á sveif með andstæðingum kirkjuvaldsins". (Hólastóll átti helming allra fasteigna í stiftinu, en Skálholtsstóll þriðjung í því stifti).

Þetta ár staðfestir konungur, Chr.3., val Gissurar Einarssonar frá 1539 til biskups í Skálholti, en Ögmundur biskup átti frumkvæði að hans kosningu. Vígsla dróst þó til 1542.
Gissur fæddist 1512 og skorti því tvö ár í þrítugt, sem var aldursmark fyrir biskupsvígslu, sjá 1542 og 1543. Auk ungs aldurs Gissurar hefur kóngur líklega viljað láta stiftið / alþingi samþykkja nýju kirkjuskipanina formlega áður en Gissur hlyti vígslu.
Lúthersk kirkjuskipan Kristjáns 3. komst á í Skálholtsstifti 1541 með samþykkt klerka á Þingvöllum að viðstöddum knektum kóngs. Í Hólastifti 1551 á Oddeyri við Eyjafjörð að tilhlutan sjóliðsforinga Kristjáns 3. Við það ár og 1550 er fjallað um siðbót Lúthers hér á landi enda átti vefsíða þessi upphaflega að byrja 1550.

Um Ögmund, síðasta kaþólska Skálholtsbiskupinn, sem aldraður var illa leikinn þetta ár af Gissuri og dönskum hermönnum, segir Arnór Sigurjónsson á bls. 465 í Vestfirðingasögu: ,,Ögmundur var allra manna líkastur leikra manna höfðingjum, sem yfirgangsmestir voru á 15. öldinni ... en dómur Árna Magnússonar um hann réttur, að hann væri ,,stór og óréttvís"".

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

Myndir