Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1547
1547
1547

Jón má þakka sínum sæla

Lag Jólasveinar einn og átta

Lag Blessuð sólin elskar allt

JJón má þakka sínum sælahve sagan greinir fátt um ljótten ef að kýrnar mættu mælamyndi biskup varla rótt.

Páfans besti biskup varog barðist fyrir trúnaen í Bjarnanesi beljurnarbaula á hann núna.

Nær í Kaldaðarnesi krossniður Gissur tekurlítið þóknast þvílíkt ossþar af snart deyr sekur.

Glúmur Gylfason · 1547

Heimildir og samhengi

Hér er átt við Bjarnanesreiðar Jóns biskups Arasonar og sona hans 1545, en einkum þá síðari 1547. Herra Jón þóttist með ,,hinum illræmda Seyludómi" (Gbr.Js.bls.114) 21.jan.1527 hafa náð eignarhaldi á Bjarnaneseignum Teits Þoarleifssonar, sem Teitur hafði þó selt Ögmundi biskupi 1525 í skiptum fyrir aðrar og til þess að að tryggja sér þau gögn og gæði reið biskupinn, herra Jón, austur þangað með a.m.k. 29 manna herflokk sem fór lítt friðsamlega (,,með ribbaldabrag" - Gbr.Js.) að Indriða Ketilssyni bónda í Árnanesi, sem líklega hefur verið staðarhaldari Bjarnaness. Árni bóndi komst naumlega undan ríðandi á flótta þegar Ari biskupsson féll af hesti sínum í læk, en vinnufólk í heyönnum fékk að kenna á harðýgi biskupssveina, sem m. a. skáru á gjarðir heybandshesta, lögðu undir sig Árnanes meðan á herförinni stóð og gengu þar í búr og ,,átu Indriða út á gaddinn", en handtóku fjármann hans og reiddu um þverbak til Bjarnaness.
Í Árnanesi urðu um 20 kýr að standa í fjósi fjögur dægur, málþola, vatnslausar og ófóðrðar.
Heimild m.a: Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, bls. 129 - 132.
Í sömu heimild, bls. 123, kemur fram að kóngur frá 1536, Kristján 3., þóttist / virtist ekki vita í bréfi 4. mars 1539, að Jón biskup hafði 1523 greitt Kristjáni 1., 300 + 73 Rínargyllini fyrir þann hluta Bjarnaneseigna sem kóngi voru dæmdar með fyrrnefndum ,,illræmda" Seyludómi. Leyfði Kristján 3ji af mildi sinni að herra Jón nyti eignanna sína lífstíð, en eftir það rynnu þær til Hólastóls, þ.e. til konungs eftir siðbót í Skálholtsstifti., 1541.

Hér segir Bændablaðið frá líðan kúa sem stóðu málþola helmingi skemmri tíma, þ.e., einn sólarhring:

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

Guðbrandur Jónsson: Herra Jón Arason, bls. 21: ,,Enda þótt leikmenn væru áhangendur hins forna siðar, hafði þeim þó mörgum eðlilega blöskrað sá óhugnanlegi ofvöxtur sem hlaupinn var í hið veraldlega vald kirkjunnar, svo að þeir snerust á sveif með andstæðingum kirkjuvaldsins".
(Í Hólabiskupsdæmi átti kirkjan helming allra fasteigna, en í Skálholtsstifti þriðjung).

Styttur, mósaíkverk og minnismerki eru reist þessum Jóni Arasyni til heiðurs á Hólum og víðar sem og í Skálholti - en ekki í Hornafirði.
Bókin ,,Híbýli fátæktar", hermir, að segja sannleika sem vega þótti að heiðri lands og / eða þjóðar, hafi tíðum þótt jaðra við landráð eða guðlast enda er þessara verka að engu getið í Íslandssögu Jónasar Jónssonar frá 1916. Sjá 1905.

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

Gissur Skálhotsbiskup Einarsson tók niður krossinn helga í Kaldaðarnesi, sem kurlaður var 1560. Helgi mikil var á krossinum í kaþólsku og farnar til hans pílagrímsferðir á krossmessu,, t.d. 1508, þegar ofhlaðin ferja sökk og af henni drukknuðu um 35 manns. Bæði þess vegna og andúðar á helgum dómum kaþólskum mun Gissur hafa fært krossinn um set.
Hann lést 1548 og voru margir ekki í vafa um orsök þess.

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1547

  • Nær í Kaldaðarnesi kross
← 1546Marteinn Lúther á banabeð1547 →Nær í Kaldaðarnesi kross