Keisara skrifaði biskup bréf
Keisara skrifaði biskup bréfbað hann herskip sendaþar Kristján þriðja kallar refer kvalastað skyldi´ í enda.
Heimildir og samhengi
Auk páfa, sendi Jón Arason bréf til þess kaþólska keisara, Karls 5. Í riti sínu um Jón Arason telur Páll Eggert Ólason að þar hafi Jón biskup beðið keisara um aðstoð og að innihald bréfsins hafi borist Kristjáni 3. til eyrna, sem gert hafi Jón að landráðamanni auk þess sem hann þá óhlýðnist boði konungs um að ganga á sinn fund og hafi orðið til þess að kóngur sendi herskip til Íslands til að sækja Jón 1551, en hann þá allur fyrir tæpu ári.
Guðbrandur (kaþólskur) fjallar á bls. 217 til 219 með öðrum hætti um bréfaskipti herra Jóns Arasonar við keisarann og páfa en Páll Eggert Ólason í riti sínu um Jón biskup.
Hvorugt bréfanna er til, en svar Páfagarðs er varðveitt.
Í Herra Jón Arason, bls. 184-5 kveður Guðbrandur Jónsson fast að orði þegar hann andmælir því sem hann kveður að flestir, ef ekki allir, sem fjallað hafi þá (1950) um herra Jón, segi hann hafa barist fyrir réttinum Íslands gegn kóngi.
Þegar Marteinn Einarsson er í vígsluför þetta ár sest Jón Arason um Skálholtsstað með hundrað (120) manna lið Norðlendinga og réðst til atlögu gegn 300 manna liði Skálholtslandseta undir forystu Daða Guðmundssonar, sem svöruðu með skothríð. Hvarf norðanliðið þá frá.
(Heimild Guðbrandur Jónsson: Herra J.A., bls. 219).