Árið 1880

t.d.

5 vísur frá árinu 1880
  1. 1880Lag: Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

    Sýslumaður setti á vetur

    og sinnti ei fróðleik þeim
    að römm er sú taug sem togað getur
    tólf hundruð sauði heim.

    Sm. Árni Gíslason (1820-1898), e.t.v. fjárríkastur allra þá, rekur sauðfé, 1.207 að tölu, frá Kirkjubæjarklaustri til Krýsuvíkur. Féð strauk allt austur aftur en fórst í vötnum á leiðinni. 60 komust þó austur undir…

    Hlusta
    Ölfusá nálægt ósÞjórsá+5
  2. 1880Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Hólaskóli í Hörgárdal

    Hjaltalín kenndi og fleiri
    fljótlega þó fært í tal
    að flytja á Akureyri.

    Stofnaður alþýðuskóli fyrir unga karlmenn á Möðruvöllum í Hörgárdal. Ein stúlka sótti skólann, Jórunni Jónsdóttur, og má lesa þar um í Gesti 5, Gils Guðmundssonar. Skólastjóri Jón Hjaltalín (1840-1908), þá Stefán…

    Hlusta
    Jón HjaltalínMAStefán Stefánsson, skólastjóri+3
  3. 1880Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Þeir er sáu í því akk:

    akta, nema, horfa
    betur þóttu búnir í stakk
    úr bændaskóla Torfa.

    Torfi Bjarnason (1838-1915), sá er 1667 kynnti nýjan og betri ljá , skoskan, stofnar og stjórnar bændaskóla í Ólafsdal í Gilsfirði. Skólinn starfaði til 1907. Námstíminn var tvö ár og 5 til 6 nemendur teknir inn árlega.…

    Hlusta
    ÓlafsdalurInntökupróf í verkfræði?Sigurður Thoroddsen Skúlason.+3
  4. 1880Lag: Eigi stjörnum ofar (afbrigði)

    Norðmenn síld með netum

    ná á fjörðum inni.
    Bárujárn frá Bretum
    bætir húsakynni.

    1853 drógu Akureyrarkaupmenn fyrir síld með landnót og fengu 324 tunnur í einum drætti og seldu óverkaða í beitu og skepnufóður. Fór svo fram víðar þar til Norðmenn komu til skjalanna og fóru að salta síld ~1880.…

    Hlusta
    "Den første sildefangst uden for Fjällbacka 1877.  SíldBárujárn+2
  5. 1880Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Frambjóðandinn fann á sér

    að firðar yrðu þyrstir:
    ,,Þeir sem Clausen kjósa hér
    nú kneyfi mjöðinn fyrstir!”
    Á kjörstað mætt var mesta glás
    á miði enginn frestur
    og næstum allir kusu Claus
    svo Kúld fékk róa vestur.

    Fyrsta kosningabarátta til Alþingis. Kosningu hlaut Holger Clausen (1831-1901) þm. Snæfellinga 1880-1885. Af vef Alþingis um H. C: ,,Við gullgröft o.fl. í Ástralíu 1849-1853, kaupsýslu í Liverpool 1853-1859 og í…

    Hlusta
    Holger ClausenSéra Eiríkur KúldSydny, Ástralíu+3