Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1880
1880
1880

Norðmenn síld með netum

Hljóðbrot0:00

Lag Eigi stjörnum ofar (afbrigði)

NNorðmenn síld með netumná á fjörðum inni.Bárujárn frá Bretumbætir húsakynni.

Glúmur Gylfason · 1880

Heimildir og samhengi

1853 drógu Akureyrarkaupmenn fyrir síld með landnót og fengu 324 tunnur í einum drætti og seldu óverkaða í beitu og skepnufóður. Fór svo fram víðar þar til Norðmenn komu til skjalanna og fóru að salta síld ~1880. Hringnót (herpinót) komu þeir með 1903 og náðist síldin þá á hafi úti.
Heimild: Jón Hjaltason: Saga Akureyrar II, 232; Saga Íslands X, 118.

Ágúst Guðmundsson, Þættir af Suðurnesjum, útg. 1942, bls. 40: ,,Þá var það, að Ívar Helgason frá Flekkuvík, sem fór til Noregs 1881, til þess að læra að veiða hafsíld, og kom upp með 30 síldarnet og seldi bændum netin, kenndi þeim að veiða hafsíld, og veiddist því hér (á Vatnsleysuströnd) fyrst síld í net 1882. Varð það til þess að aflinn jókst feiknamikið".

Vefursild.is (opnast í nýjum flipa)

Geir Zoëga flytur inn bárujárn 1874 og varð almennt í Reykjavík eftir 1880 segir Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar, bls. 33.

Sami höfundur ritar Sögu samvinnunnar á Suðurlandi. Þar er í I. bindi á bls. 47 mynd af glæsihúsi bóndans Gunnlaugs Skúlasonar á Kiðjabergi í Grímsnesi, byggt 1869.
Meistarafélag húsasmiða keypti síðast Kiðjaberg og gerði húsið upp. Hér sést það á mynd Marts Vibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Bjarni Harðarson segir í Króníku úr Biskupstungum, bls. 97, að bárujárnsþök séu komin á hús í Skálholti 1911 og vatni sé safnað af þeim og dugi til að brynna í fjósi.

Á blaðsíðu 252 í 2. bindi Fjallkirkjunnar svarar Gunnar Gunnarsson því hvort og hve lengi sé hægt að festa blund við úrhellisrigningu í torfbæ.

Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar II, 66, úrdráttur: Járnþak kom fyrst 1878 á steinhús á Hvítárvöllum. Timburhlöður með járnþaki fyrst byggðar eftir 1880. Þá flytjist og inn ristuspaðar, skóflur og gafflar (bls. 125). Eftir 1870 sé víða farið að þilja torfbæi og leggja fjalir á gólf og stöku efnabændur í þjóðbraut máli gestastofur. Ofnhiti þekktist aðeins hjá embættismönnum. ,,Þeir sem peningum söfnuðu héldu í þá dauðahaldi þangað til þeir gátu fest þá í jarðarskika".
Á bls. 71 segir Kristleifur frá því – og hefur eftir Einari H. Kvaran - hvernig gólffjalirnar í baðstofunni vildu hyljast og sökkva í skít. Þegar faðir Einars fluttist prestur að Goðdölum komu þær í ljós þegar út hafði verið ekið 14 hjólbörum af gólfskán (skít).
Er hér komin skýringin á afstöðu Íslendinga til ,,skrælingjasýningarinnar" í Tívoí 1905?

Vefureikarfell.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1880

  • Sýslumaður setti á vetur
  • Hólaskóli í Hörgárdal
  • Þeir er sáu í því akk:
  • Frambjóðandinn fann á sér
← 1880Þeir er sáu í því akk:1880 →Frambjóðandinn fann á sér