Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1880
1880
1880

Frambjóðandinn fann á sér

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, fögur er vor fósturjörð

FFrambjóðandinn fann á sérað firðar yrðu þyrstir:,,Þeir sem Clausen kjósa hérnú kneyfi mjöðinn fyrstir!”Á kjörstað mætt var mesta glásá miði enginn fresturog næstum allir kusu Claussvo Kúld fékk róa vestur.

Glúmur Gylfason · 1880

Heimildir og samhengi

Fyrsta kosningabarátta til Alþingis.
Kosningu hlaut Holger Clausen (1831-1901) þm. Snæfellinga 1880-1885.
Af vef Alþingis um H. C: ,,Við gullgröft o.fl. í Ástralíu 1849-1853, kaupsýslu í Liverpool 1853-1859 og í Kaupmannahöfn 1859-1862. Var þá í kaupferðum til Íslands". H. C. var kaupmaður og verslaði í Ólafsvík, á Búðum og í Stykkishólmi.

Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi II, 115; (O. C. er sonur frambjóðandans, H. C.).
Kjörstaður Snæfellinga var á Görðum í Staðarsveit. Mynd Mats Vibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

,,kosningin þar var svo vel sótt, að eftirtekt vakti um allt land” 194 kusu, en 84 í Reykjavík.
O. C. lætur ekki beinlínis uppi hvað dró þennan fjölda sjó og landveg fyrir Nesið og þvert yfir það - nefnir þó: ,,Menn höfðu riðið í hópum til kosningarinnar og verið talsvert glaðir ... komu flestir utan af Nesinu og kusu Holger Clausen allir með tölu, 133, Þórður Þórðarson á Rauðkollsstöðum (fv. þm.) fékk 50 atkvæði og sr. Eiríkur Kúld 10. Til þess tíma hafði þingmaður aldrei verið kosinn með svo miklum atkvæðafjölda. Hinn fallni frambjóðandi, séra Eiríkur Kúld (prestur í Stykkishólmi), reið hljóður yfir Kerlingarskarð um nóttina, háttaði ekki, vakti vinnumenn, tók skektu sína og sigldi yfir þveran Breiðafjörð, bauð sig fram og var kosinn þingmaður Barðstrendinga”. (1800).
Íslenskar æviskrár segja Eirík Kúld hafa verið orðlagt ljúfmenni.

Ágúst á Hofi, Vatnsdal, lýsir í ævisögu, bls. 56 hvernig vínið flaut á kjörfundum t.o.m. 1903 á meðan atkvæði voru greidd í heyrenda hljóði. ,,...foringjar reyndu að hýrga liðsmenn sína hæfilega, en vandinn var sá mestur ... að menn yrðu ekki ofurölvi áður en þeir kysu".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Halldór Laxness, Skáldatími, bls. 231: ,,Hér (Ólafsvík 1936) var einn þeirr staða þar sem enn eingin viðreisn hafði farið fram á Íslandi. Fjóshaugarnir stóðu fyrir dyrum manna við aðalgötuna einsog í sveitaþorpum á Frakklandi. ...Lífið í Ólafsvík var ekki ögn betra en í aumum plássum á Rússlandi nema hér var óhugsandi að geta orðið húngurmorða, fiskurinn var ókeypis. Þó voru þarna til menn sem skáldskapurinn og ljómi fornsagnanna skein af augum ...".

Myndir

Einnig frá árinu 1880

  • Sýslumaður setti á vetur
  • Hólaskóli í Hörgárdal
  • Þeir er sáu í því akk:
  • Norðmenn síld með netum
← 1880Norðmenn síld með netum1881 →Um Alþingishúsið stendur styr