Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1922
1922
1922

Í fyrsta skipti kratar klofna

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

ÍÍ fyrsta skipti kratar klofnavið kommúnista böndin rofnaen yfir þeim sést ekkert dofnaungra komma félag stofna.

Glúmur Gylfason · 1922

Heimildir og samhengi


Á átakafundi í Jafnaðarmannafélagi Reykjavíkur 17. október verða hinir hægfara undir og stofna Jafnaðarmannafélag Íslands, en bæði félögin þó í Alþýðuflokknum.

Deilur sósíalista frá 1921 eftir að Alþýðublaðið birti grein eftir ,,B" (kommúnistann Hendrik Ottósson) sem réðist gegn sósíalistum - sagði þá starfa með borgurum við að svíkja verkalýðinn en væru föðurlandssinnar. Þeir kæmu sér vel fyrir sem leiðtogar alþýðunnar en væru orðnir auðmenn og hefðu ekki lengur hag af byltingunni. (Roðinn í austri, bls. 116).

1924 benti Akureyrarkommúnistinn Einar Olgeirsson félögum sínum syðra sem þá gáfu út Rauða fánann, á að kommúnistar yrðu að taka þjóðernishyggjuna í þjóustu sína - annars yrði íslenska þjóðin aldrei frjáls. Heimild: Roðinn í austri, bls. 288. Sjá og 1934.

En 1934 snerust alþjóðahyggjumenn, kommúnistar, og gerðust íslenskir þjóðernissinnar að fyrirlagi Stalíns, vegna þess að ,,alþýðulýðveldi gæti ekki haft konung". Þannig komust þrír kommúnistar á þing 1937.

Upp úr hafði soðið á milli róttækra og hægfara í ASÍ í ,,Drengsmálinu" 22. nóv. 1921 þegar stjórn ASÍ neitaði að standa að vopnuðum átökum við lögregluna. (Roðinn í austri, bls.164).

Völdum í Jafnaðarmannafélagi Reykjavíkur náði Ólafur Friðriksson með ,,30 manna einvalaliði verkamanna" skrifar hann til Komintern í Moskvu og nefnir það lið sitt Áhugalið alþýðunnar. Einar Olgeirsson sagði það starfsstíl Ólafs að ráða sem einvaldur. (Guðjón Friðriksson: ,,Úr fjötrum", bls.78). Hendrik Ottósson segir í ,,Frá Hlíðarhúsum" frá bls. 300, Áhugaliðið leynilegan kommúnistaflokk sem ná skyldi völdum í Alþýðuflokknum. Stofninn í þessu Áhugaliði þeirra Ólafs og Hendriks voru þeir ~60 verkamenn sem söfnuðust saman heima hjá honum í Suðurgötu 14 frá og með 18. nóv. 1921 til að verjast lögreglunni þegar vísa skyldi rússneska ,,drengnum" augnsjúka N. Friedmann úr landi. (Roðinn í austri, 192).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

1925 mistókst ungum Moskvukommúnistum að fella Ólaf Friðriksson úr forsæti Jafnaðarmannafélags Reykjavíkur og yfirgáfu það þá og stofnuðu Jafnaðarmannafélagið Spörtu. Ólafur þá líka einangraður frá gömlu félögunum í Alþýðuflokknnum, sem 1926 ráku hans félag, Jafnaðarmannafélag Reykjavíkur, úr Alþýðusambandinu vegna skulda. (Úr fjötrum 82).

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

23. nóvember 1922 stofnað Félag ungra kommúnista, formaður Hendrik Ottósson (1897-1966). Hendrik Ottósson, Vegamót og vopnagnýr, bls. 28-30: ,,Allt það sem við kommúnistar gerðum var í samráði við félaga okkar erlendis, þá Ársæl Sigurðsson, Brynjólf Bjarnason, Einar Olgeirsson og Stefán Pétursson".

HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)

Vinstri græn syngja Nallann. Ekki sett hér þeim til háðungar, þvert á móti, VG gefa þjóðinni gott en of sjaldgæft fordæmi með því að syngja án Bakkusar. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

,,Atvinnurekendur" syngja:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurtheconservative.online (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1922

  • Nú skal krónan sjá um sig
  • Á öreigum brúnir og limir lyftast
← 1922Á öreigum brúnir og limir lyftast1923 →Fyrsta ganga 1. maí: