Árið 1713

t.d.

3 vísur frá árinu 1713
  1. 1713Lag: Austankaldinn á oss blés - Stúd. 86

    Ólyginn hefur Oddi sagt

    og aftur hann fyrir danskinn lagt
    að Pál hafi lögrétta' í engri akt
    og ætli að krefjast hans ljúki makt.
    1 erindi til viðbótar

    Oddur skrifaði stam. Gyldenlöve 1712 og undirbjó náðarhöggið. Tilvitnun í J. Aðils: Oddur Sigurðsson, 70: ,,Ég (Oddur) hef nýlega komist á snoðir um að flestir af sýslumönnum og réttarins þjónum á landinu væru mjög…

    Hlusta
    Ulrik Christian Gyldenlöve, stam.+2
  2. 1713Lag: Dvel ég í Draumalandi

    Ei fannst Páli að því gaman

    að eiga að víkja úr dómi
    ,,en Oddur sló forakt að öllu saman”
    og uppkvað háum rómi:
    ,,óvirðing við yfirrétt
    eigi kunnum líða”
    ef værir ekki af æðri stétt
    ætti þig að hýða.
    1 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Það gekk eftir, að Oddur lét til leiðast að víkja Páli úr lögmannsembætti á alþingi 1713. Það varð eftir að Páll neitaði að víkja úr lögmannssæti í…

    Hlusta
    ÞingvellirLögberg
  3. 1713Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Odd er besótti biskupinn

    blifu ekki sáttir
    Vídalín bæði út og inn
    æddi um port og gáttir
    brennivín til frúkosts fékk
    franskt það mátti vera
    því annað hæfði ekki smekk
    æðsta landsins séra.
    2 erindi til viðbótar

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Skv. Jóni Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 96, 103, 113. Biskup Jón Vídalín ,,visiteraði” Odd Sigurðsson að Narfeyri, áður Geirröðareyri. Tvennum sögum fer…

    Hlusta
    NarfeyriNarfeyriJón Vídalín biskup +3