Odd er besótti biskupinn
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
5.-7. sept. á Narfeyri / Geirröðareyri
Odd er besótti biskupinnblifu ekki sáttirVídalín bæði út og innæddi um port og gáttirbrennivín til frúkosts fékkfranskt það mátti veraþví annað hæfði ekki smekkæðsta landsins séra.
Vitni Jóns Vídalíns höfðu þetta að segja:
Að Geirröðareyri' um götu þvertgestrisni fyrr h'in mestanú biskup hitti' h'inn versta verter virti einskis prestaOddur verið upp með stertog öllu viljað frestagest með sínu æði ertog orðbragð klám hið versta.
Vitni Odds Sigurðssonar:
,,Drukku báðir trekk í trekkuns tóku hrúta' að skerabiskup stríðnin þótti þekk- það mátti' Oddur bera -bað um meira brennivínbænum sínum gleymdi”vísitazían vaðall, grínvarð, og eftir reimdi.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Skv. Jóni Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 96, 103, 113.
Biskup Jón Vídalín ,,visiteraði” Odd Sigurðsson að Narfeyri, áður Geirröðareyri. Tvennum sögum fer af framferði þeirra, hvor átti upptökin og hvor drakk meira, en mikið gekk á.
Biskup kærði Odd, sem gat þó ekki mætt til dóms enda skipreika undir Látrabjargi, sjá 1714.
,,Þetta allt passeraði undir yfirskyni visitazíu í kjölfar þess að Oddur vék Páli Vídalín úr lögmannsembætti".
Jón Aðils telur að með því að færa sér ógætni Odds í nyt hafi biskup ,,náð tilgangi sínum að því leytinu til að hann fékk almenningsálitið á sitt band og honum tókst að vekja upp úr þessu svo mikinn ófrið að ekki hafa aðrar deilur orðið hér minnisstæðari á síðari öldum. ...Það hefur almennt verið álit manna bæði þá og síðar að Oddur hafi að ósekju flogið á Jón biskup er hann gisti á Narfeyri og barið hann".
En Jón Aðils telur líklegt að Jón hafi átt upptökin.
,,Daginn eptir (7/9) skrifaði Vídalín konungi og skýrði frá málavöxtum en auðvitað með þeim orðum að öll sökin bitnaði á Oddi. Þóttist hann ekki hafa haft frið fyrir honum til að gegna embættisverkum sínum og kvartaði sáran undan meðferðinni á sér: ,,Þess vegna er það mín innileg bæn til Yðar Hátignar, að þér, þar eð ég héðan í frá get ekki verið óhultur um líf eða limu fyrir lögmanninum, vilduð taka mig undir yðar vernd, til þess að nefndur lögmaður ráðist ei með ofstopa á mig, Yðar fátæka þegn og guðs þjón.”" (Landsbókasafn nr. 724, 4to).
Því sem næst samhljóða kæru – með öfugum formerkjum - á biskup Vídalín, skrifaði Oddur kóngi heim kominn frá Höfn sumarið 1716. (Jón Aðils: Oddur Sigurðsson bls. 96, 103, 113).
Efnisskýringar: Í vitnisburðum votta eru sagnirnar blífa og besækja, biskup sagður fara í kamers það sem Oddur síst vildi fá honum; franskt brennivín í frúkost og alla mata; vitni biskups segja ,,Odd hafa farið með klám og fresta reisu suður yfir Jökul”, sem biskup vildi að yrði farin strax; sofnuðu eftir drykkju og borðhald; vaðall: gestanauð.
Úr Eyrbyggju: ,,Geirröður á Eyri ... lét setja skála sinn á þjóðbraut þvera ok skyldu allir menn ríða þar í gegnum; þar stóð jafnan borð ok matr á, gefinn hverjum er hafa vildi. Af slíku þótti hon it mesta göfugkvendi".
Ummæli sr. Ágústar Sigurðssonar bls. 142 í 1. bindi Fornra frægðarsetra:
,,Sú biskupsvisitazía hefur orðið frægust á Íslandi, en áfengisnautn biskups svo yfirgengileg að engu tali tekur, óskammfeilni hans og ruddamennska. Ekki skal reynt að bera blak af Oddi Sigurðssyni, að hann ertist við biskup, en það er víst, að kirkjuskoðun þessa hálofaða svarks á Skálholtsstóli hefur ekki verið mikil í þetta skipti á Narfeyri".