Svan und Látrabjarg er bar
Lag Fljúga hvítu fiðrildin
Svan und Látrabjarg er barbetra sýndist þegja umað bregða fyrir þótti þarÞormóði' í Gvendareyjum.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,..hrakti vicelögmanninn, Odd Sigurðsson, á sínu stóra skipi, Svan, með mönnum og góssi, frá Búlandshöfða undir Látrabjarg á Vestfjörðum.
Náðu þeir klettaskoru eður vík, hvar skipið brotnaði í spón; góssi varð sumu bjargað, en menn komust allir af”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Landsbókasafn nr. 124 fol. og 508 4to segir að Oddur hafi komið við hjá Þormóði (galdrameistara Eiríkssyni (1668-1741)) í Gvendareyjum áður en lagði yfir Breiðafjörð og þeim orðið sundurorða.
Vísa sem Þormóður á að hafa kvatt Odd með lýsir átökum og hurðarskelli:
,,Hér er hnigin hurð að gátt
hittir loku kengur
kjaftshögg hefur enginn átt
ári hjá mér lengur".
Þormóður galdrameistari hafði fóstrað Galdra-Loft Þorsteinsson. Var því ljóst hvað olli veðrinu sem grandaði Svaninum Odds. (Einar Sigurðsson, Bernskudagar í Breiðafirði, bls. 18).
Í Manni og konu lætur Jón Thoroddsen Bjarna á Leiti segja Þormóð í Gvendareyjum hafa gert bylinn að Oddi lögmanni.
Íslenskar þjóðsögur Jóns Árnasonar, Galdrasögur, útg. 1971 af Óskari Halldórssyni, bls. 140 - 155 segja margt frá Þormóði í Gvendareyjum.
Oscar Clausen, Sögur af Snæfellsnesi III, 193:
,,Veturinn 1711, rétt fyrir jólin, var farið í konungsbúðina í Stykkishólmi og stolið þar miklu af vöru ...kaupmaðurinn dróttaði því að Þormóði skáldi í Gvendareyjum, að hann væri valdur að þjófnaðinum ...það var orðinn mikill skortur og neyð í héraðinu og báru fátæklingarnir sig aumlega. Þjóðsagan segir að Þormóður hafi í fyrstu verið tregur til ...hafi borið lásagras að búðarlæsingunni og hún þá óðar opnast. Þormóður gekk ekki sjálfur í búðina en lét aðra sjálfráða um hvað þeir gerðu. Kaupmaðurinn var danskur. Honum varð illa við Þormóð út af þessu máli ...Þormóður hataðist aftur við kaupmanninn.
Á Stykkishólmsskipinu var danskur piltur sem hét Peter Balle. Hann hafði oft vikið góðu að Þormóði og var honum því vel til hans. Þormóður réði því Pétri til að ganga af skipinu því að óvíst væri að því gengi svo vel ferðin út. Ekki vildi Pétur fara að ráðum Þormóðs.
Þegar skipið lagði úr höfn í Hólminum kvað Þormóður vísur ...Ránardætur ríði á slig / rasta hesti búna / hvítfaldaðar svelgi í sig / sökkvi haukur húna.
..Skipið fórst við Hjaltland og drukknuðu þar allir nema Peter Balle”.
Í bók Þorsteins Matthíassonar, ,,Gengin spor", bls. 52 er þáttur um hrakning Odds lögmanns á Svaninum. Þar er Þormóður sagður hafa verið á skipi sem sigldi framhjá Svaninum Odds.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í ,,Gengin spor", bls. 52, skráir Þorsteinn Matthíasson eftir handriti Guðbrands Sturlaugssonar frá Hvítadal: ,,sumir sögðu að Þormóður skáld í Gvendareyjum væri á skipi sem mætti Svaninum í stillilogni fyrir utan Búlandshöfða".