Ólyginn hefur Oddi sagt
Lag Austankaldinn á oss blés - Stúd. 86
Lag Enginn lái öðrum frekt - Bj.Þ. 831
Ólyginn hefur Oddi sagtog aftur hann fyrir danskinn lagtað Pál hafi lögrétta' í engri aktog ætli að krefjast hans ljúki makt.
Aðgát haf við unga sálallir skyldu munaOddi þótti æ við Páleftir hýðinguna.
Heimildir og samhengi
Oddur skrifaði stam. Gyldenlöve 1712 og undirbjó náðarhöggið.
Tilvitnun í J. Aðils: Oddur Sigurðsson, 70: ,,Ég (Oddur) hef nýlega komist á snoðir um að flestir af sýslumönnum og réttarins þjónum á landinu væru mjög óánægðir með hlutdrægni Páls lögmanns og óeirðir hans og gengur sá kvittur, að nokkrir meðal þeirra hafi í hyggju að fara fram á að Páli verði vikið frá lögmannsembættinu”.
J. Aðils: O. Sig. bls. 66: ,,Þegar Oddur var kominn til vegs og valda mundi hann Páli hýðinguna úr skóla (~1695) og sat sig ekki úr færi að láta hann finna til þess hvenær sem hann gat komið því við”.