Árið 1778

t.d.

3 vísur frá árinu 1778
  1. 1778Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Sýnist vera kóngi kær

    og kunna á málum taka
    Skúli hlutafé sitt fær
    að fullu greitt til baka.

    Fjárskiptum vegna kláðans 1762 lýkur í Borgarfirði; kóngur leysir til sín hlutabréf Innréttinganna og fær þá Skúli endurgreidd sín bréf. En hlutabréfum Innréttinganna hafði - gegn mótmælum Skúla - verið breytt í…

    Hlusta
    Skúli Magnússon fógeti
  2. 1778Lag: Dvel ég í draumahöll

    Úr óánægju einni dó

    einkadóttir Thodals
    af agent fékk hún ekki nóg
    ei kom gifting til tals.
    Sólveig öllum sannað fær
    að sér um líkt ber ekta
    henni verið hefði nær
    að horfa til lægri slekta.

    Annálar, VI, 207: ,,13da Maii deyði stjúpdóttir stiptamtmanns Thodals, Wilhelmina Klow, af óánægju (að menn meintu) vildi hún eiga agent Carl Pontoppidan, en fékk ei, hvað sagt var henni hefði þungt fallið”.…

    Hlusta
    Miklibær í SkagafirðiDiana, Princess of Wales +1
  3. 1778Lag: Sá frjáls við lögmál

    Í Hnífsdal átti ógn sér stað

    hver öllum þótti miður
    þá ,,farðu til helvítis" kerling kvað
    hneig karl hennar dauður niður.
    1 erindi til viðbótar

    Íslands Árbók, V, bls. 85: ,,Í Hnífsdal á Vestfjörðum bar svo til um veturinn (Í Árbókinni skráð 1776, en sumt þar talið eiga heima einu eða tveimur árum síðar), að bóndi og kona hans höfðu deilt illdeilu. Þá maðurinn…

    Hlusta
    HnífsdalurHekla