Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1778
1778
1778

Úr óánægju einni dó

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

ÚÚr óánægju einni dóeinkadóttir Thodalsaf agent fékk hún ekki nógei kom gifting til tals.Sólveig öllum sannað færað sér um líkt ber ektahenni verið hefði nærað horfa til lægri slekta.

Glúmur Gylfason · 1778

Heimildir og samhengi

Annálar, VI, 207: ,,13da Maii deyði stjúpdóttir stiptamtmanns Thodals, Wilhelmina Klow, af óánægju (að menn meintu) vildi hún eiga agent Carl Pontoppidan, en fékk ei, hvað sagt var henni hefði þungt fallið”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Annálar, VI, 562: ,,Carl nokkur, áður undirkaupmaður í Hafnarfirði, nú þar yfirkaupmaður, orðinn rangpersóna, vildi fá til ekta stjúpdóttur stiptamtmanns. Hann vildi ei leyfa það. Hún deyði, meinast af ergelsi. Þessi Carl er kallaður agent svo sem yfir öðrum kaupmönnum”.
Sm. Magnús Ketilsson segir á bls. 30 í amtmannatali sínu, að kvöldi fyrir andlát stúlkunnar hafi Thodal gefið leyfi til ráðahagsins, en ,,hjálpaði ekki".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Stm. Thodal kom með Landsnefndinni og hlaut bestu dóma allra danskra embættismanna segir sm. Magnús Ketilsson (1773). Hélt t.d. áfram hjálparstörfum í móðuharðindunum í eitt ár eftir að ráðningartíma hans var lokið aldurs vegna. Sm. Magnús Ketilsson fjallar á bl. 21 til 32 í amtmannatali sínu um Thodal á jákvæðan og oft kostulegan hátt. Thodal gerði sér ferð til Skálholts áður en hélt af landi brott, til þess að kveðja Finn biskup, en samkomulag þeirra hafði áður ekki verið sem best. Kvaddi stiftamtmaður Finn biskup með því að þakka honum bæði fyrir vont og gott (sama bók, bls. 25).

Carl Pontoppidan varð forstjóri Konungsverslunarinnar árin 1781 til 1787 og skrifaði bók þar um sem Gísli Gunnarsson vitnar til í Upp er boðið Ísaland.

Sólveig, vinnukona á Miklabæ í Skagafirði, Miklabæjar-Sólveig, fyrirfór sér, 11. apríl 1778 og þess vegna dysjuð utangarðs og því trúað að lægi ekki kyrr. Hún hafði fellt hug til eða átt vingott við húsbónda sinn, séra Odd Gíslason biskups Magnússonar og dularfullt hvarf hans og dauði 1786 talið af hennar völdum.
Skv. óskráðum stjórnarskrárlögum þessa tíma eru hjónabönd milli stétta með öllu óhugsandi og gerast einungis í ævintýrum.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1778

  • Sýnist vera kóngi kær
  • Í Hnífsdal átti ógn sér stað
← 1778Sýnist vera kóngi kær1778 →Í Hnífsdal átti ógn sér stað