Sýnist vera kóngi kær
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Sýnist vera kóngi kærog kunna á málum takaSkúli hlutafé sitt færað fullu greitt til baka.
Heimildir og samhengi
Fjárskiptum vegna kláðans 1762 lýkur í Borgarfirði; kóngur leysir til sín hlutabréf Innréttinganna og fær þá Skúli endurgreidd sín bréf. En hlutabréfum Innréttinganna hafði - gegn mótmælum Skúla - verið breytt í hlutafé Almenna verslunarfélagsins þegar það tók við Innréttingunum 1764. Skúli höfðaði þá mál sem hann tapaði, en þrátt fyrir það borgar stjórnin honum nú bréfin út og er það enn eitt dæmið um gengi Skúla hjá stjórninni.
Rekstri Innréttinganna, sem byrjaði 1752, mátti heita lokið.
Skúli átti stærstan þátt í að bæði Hörmangarafélagið og Almenna verslunarfélagið voru látin hætta Íslandsverslun við litinn orðstír.
Málsbætur þó:
Hörmangarar, eins og landsmenn lentu í harðindum 1752 til 1756 og kláða eftir það.
Almenna aflaði markaðar fyrir saltfisk á Íberíuskaga, sem Íslendingar gengu inn í síðar. (1790).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Saga frá Skagfirðingum I, 92, telur að starfsmenn Hörmangara muni hafa meir valdið óvinsældum þeirra en eigendurnir og nefnir að þeir sömu menn hafi rekið kóngsverslunina með sama lagi 1759-1763, og svarað aðfinnslum með því að kóngur vildi hafa það svo.
Slæmir hafa starfsmennirnir verið hafi þeir verið eigendunum verri sé tekið mið af lýsingu Gísla Gunnarssonar við 1743.
Það sem ,,kóngi" er talið til tekna á við stjórn eða ráðgjafa þar sem Kristján VII. (1749-1808) var sjúklingur. Hann taldist vera kóngur frá 1766 til dd.