Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1712
1712
1712

,,Til meins er öllum Oddur gerður

Hljóðbrot0:00

Lag Jólasveinar 1 og 8

Jón biskup Vídalín til lm. Páls Vídalín:

TT,,il meins er öllum Oddur gerðuróvinum jafnt vinum sín”ódæll var og er og verðuryfir þingi og landi gín.

Oddur lm. Sigurðsson til stam. Gyldenlöve:

,,Biskup einn vill öllu ráða”- Oddur kvartar við Gulliðljón -,,forsmáir okkur Beyer báðabest að losna við þennan Jón”.

Glúmur Gylfason · 1712

Heimildir og samhengi

Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.

Í bréfi til Páls Vídalín í desember 1712 segir Jón biskup Vídalín m.a.: ,,öllum er hann (Oddur) til meins gerður, bæði vinum og óvinum”. Einnig að hann geti ekki verið vinur Steins Hólabiskups nema hann slíti vinskap við Odd. (J. Aðils: O. Sig. bls. 65).

Síðari vísan má heita orðrétt úr bréfi Odds Sigurðssonar til stam. Gyldenlöves.
P. Beyer var fulltrúi am. Christians Möller, en Oddur fulltrúi Gyldenlöves.
Oddur kom ei til þings né heldur Hólabiskup. Jón Skálholtsbiskup Vídalín viðurkenndi ekki rétt Páls Beyer til forsætis í prestarétti í forföllum Odds og settist einn í forsæti þar. Gekk hann fram af hörku gegn prestum sem honum þóttu brotlegir og áttu þeir þá vísan stuðning Odds.
Í tilvikum þæfði Oddur málin þar til biskup var allur.

Þeir Jón biskup og Oddur kærðu hvor annan til Gyldenlöves: Oddur í bréfi 24. ág. 1712: ,,Ég hef á síðastliðnu ári gefið yður til kynna hvað miklu sjálfræði biskupinn beitir hér á landi... því hann vill einn öllu ráða í kirkjulegum málum. Nú í ár hefur ráðríki hans keyrt fram úr öllu hófi og hef ég þess vegna – af því ég elska frið og spekt – heldur kosið að þoka mér undan allri samvinnu en að eiga nokkuð saman að sælda við þennan óróasegg og drykkjurút sem á svo marga vegu hefir kostað kapps um að rýra vald yðar”.
(J. Aðils: Oddur Sigurðsson, bls. 63 – þýddi úr dönsku).

Myndir

Einnig frá árinu 1712

  • Til Hafnar Árni halda má
← 1711Endar og byrjar Skúlaskeið1712 →Til Hafnar Árni halda má