Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1907
1907
1907

Skal fræðsla metin góð og gild

Hljóðbrot0:00

Lag Hvað boðar nýárs blessuð sól?

SSkal fræðsla metin góð og gildgagnlegt að nemi börnin klók:tíu ára öll skólaskyldað skrifi, reikni' og lesi' á bók.

Glúmur Gylfason · 1907

Heimildir og samhengi

Fræðslulög um Kennaraskóla (frá 1908) og skólaskyldu barna 10 til 14 ára þar sem ríkissjóður greiði kennaralaun og sjái fyrir skólahúsnæði. Kennaraskólinn við Laufásveg reistur í beinu framhaldi og tekinn í notkun 1908.

,,Gjá milli þings og þjóðar”?
Ólafur Þ. Kristjánsson, í formála að ritsafni Stefáns Hannessonar, kennara, Litla-Hvammi, föður Vatna-Brands (1928), bls. 14:
,,Fræðslulögin... áttu ekki alls staðar góðum viðtökum að mæta. ...bls. 10: ...því fór fjarri að litið væri á breytingar á skólamálunum með velvild eða skilningi. ...gagnið lítið og tíma barna og unglinga betur til annars varið. Eymdi lengi eftir af þeim hugsunarhætti”.
Á bls. 87 er það viðhorf frá 1912, að barnakennslu megi stunda af hugsjón, ef kennari endilega vill og ekki sjálfsagt að laun komi fyrir, sbr. 1923.

Sjá og: 1852, mótmæli gegn barnaskóla á Eyrarbakka; 1874, þegar hinn ,,óþjóðlegi” kvennaskóli Þóru Melsted mátti treysta á erlent samskotafé; Flensborgarskóli, - sjá 1892; sundkennsla álitin varhugaverð og jafnvel lífshættuleg sjómönnum; til bændaskólanna andaði lengi köldu – einkum frá bændum, en hvergi sést að siglingafræðikennslu hafi verið mótmælt, en aðeins lögskráningu áhafna, siglingaljósum, sem og sauðfjárböðun – sjá 1852, 1858, 1874, 1880 og 1890.
Í fyrsta fjórðungi Guðfræðingatals 1976 kemur þessi setning a.m.k. fjórum sinnum fyrir: ,,Kenndi sveinum", síðan tiltekið prestsetur þar sem sveinar einir fengu að læra. Þetta á einkum við árin fram að 8. áratug 19. aldar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1907

  • Bjóða má nú ekki í
  • Falskir miðlar féllu í trans
  • Allir klerkar á opinber laun
  • Í Önundarfirði ein stóð höll
  • Falskir miðlar féllu í trans
← 1907Falskir miðlar féllu í trans1907 →Allir klerkar á opinber laun