Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1907
1907
1907

Falskir miðlar féllu í trans

Hljóðbrot0:00

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

Lag Suðurlands

FFalskir miðlar féllu í transfólkið kónginn sáSigtún við Ölfusá.

Þótt Íhalds- og Framsóknar- bauli böbeggja kýr að vandasláturhúsin hljóta tvöí hverri sveit að standa.

Glúmur Gylfason · 1907

Heimildir og samhengi

Um falska miðla, sjá 1906 og Öldina okkar.

Friðrik VIII. kom til Íslands ásamt 40 dönskum Þjóðþingsmönnum og riðu m.a. til uppsveita Árnessýslu eftir vegum sem gerðir höfðu verið vagnfærir, en kóngur lét sig þó ekki muna um að sitja hest allan tímann. Þá voru nýjar brýr smíðaðar á Tungufljót og Hvítá við Brúarhlöð. Sjóveg heimsótti kóngur og fylgdarlið Ísjafjörð, Akureyri og Seyðisfjörð,

Í viðtali við Guðmund Daníelsson, ,,Verkamenn í víngarði", bls. 172, segir Sigurður Greipsson (1897-1985) frá komu konungs til Geysis: ,,...Það voru miklar framkvæmdir hér í sambandi við konungskomuna. ...ruddir vegir um alla byggðina. Svo voru reist hér tvö stórhýsi, annað handa 40 dönskum ríkisþingsmönnum, hitt handa kóngi. Hér voru um 1000 hestar geymdir um nóttina. Ég var á hnotskógi alls staðar ... að horfa með undrun á þessa dýrð, ekki síst hvernig kóngurinn leit út".

Stofnað Sláturfélag Suðurlands, formaður Ágúst Helgason í Birtingaholti (1862-1948). Forstjóri Hannes Thorarensen (1872-1944) Skúlason, læknis, Móðeiðarhvoli og k.h. Ragnheiðar Þorsteinsdóttur. Hannes var áður verslunarstjóri hjá Dietlev Thomsen, sem var einn hinna umsvifamestu kjötkaupmanna í Reykjavík, sem Sláturfélagið ruddi úr vegi. (Ágúst Helgason í Birtingaholti, Endurminningar, bls. 138).
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson I, 326: ,,Á fjölmennum fundi í Þjórsártúni 7/1 er einróma samþykkt að hafna hlutafélagshugmynd Einars Ben., - hann braskari sem reyni að hafa fé af saklausu fólki, en stofna þess í stað sameignarsláturfélag ... loddi óþrifastimpill við saltkjötið á meðan slátrað var heima”.
Sláturhús reis í Rvk. og þetta ár líka á Akureyri, KEA, og Húsavík, KÞ, Sjá og 1896.

Þeir - sem þótti Framsóknarlykt af kjöti sem slátrað hafði verið hjá Sláturfélagi Suðurlands - stofnuðu til Íhaldsslátrunar, jafnvel við hlið SS eins og á Selfossi, Sigurður Óli (Höfn) á eystri bakka Ölfusár, Garðar Gíslason á Minni-Borg í Grímsnesi, Ingólfur á Hellu (Kf. Þór), Verslunarfélag Vestur-Skaftfellinga í Vík, o.s.frv.

Guðjón Friðriksson, Samvinna á Suðurlandi, I, 214: ,,Sigrast þurfti á tregðu margra bænda, rótgróinni einstaklings- og sjálfshyggju þeirra. ...Þegar frá leið varð Sláturfélag Suðurlands sameiginlegur vettvangur sunnlenskra samvinnumanna, hvar í flokki sem þeir stóðu".
Um hagsmunaárekstur sjá 1909.

Bjarni Guðmundsson ritar í bókinni Halldór (Bjarnarson) á Hvanneyri, á bls. 42, að markaður hafi fengist fyrir saltkjöt erlendis og fráfærur því lagst af og bændur mátt breyta búháttum sínum algerlega.
Áður, 1905, er lýst afskiptum Halldórs af rjómabúum syðra, en 1. sept. það haust verður hann ráðunautur Búnaðarsambands Austurlands og lýsir hann kjötverkun þar eystra í Ingólfi 1907, og endurbirt í ævisögu Halldórs, bls. 42.
Vandlætingarpistill Halldórs um rjómabúin, sem fólk fyrrtist við syðra, er hástemmd lofgerð borin saman við lýsinguna á blóðvellinum og söltunarvinnunni eystra.

Árni Ögmundsson: Ysjur 1, bls. 14: „...fólkið ...sá hverju samvinna gat áorkað til hagsbóta ...vissi hvernig ástandið var, þegar tók fyrir sölu á sauðum til Englands og feður þess urðu að reka sláturféð til Reykjavíkur með von um að geta selt það kaupmönnum. Kaupmenn notuðu sér að bændur gátu ekki farið með féð heim aftur og greiddu lægra verð fyrir en bændur töldu sanngjarnt.
Fólkið vissi vel um breytinguna sem á þessu varð við stofnun Sláturfélags Suðurlands".

Fróðlegt er að bera þessa viðskiptahætti saman við lýsingu Odds Oddssonar hér, við 1855, á því hvernig hann segir þá vera langt fram eftir 19. öld.

FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Kristján Ólafsson, smiður, kvæntur Kristjönu úr Norður-bænum á Selfossi, byggir hús, Sigtún, rétt austan við Ölfusárbrú og verslar þar til 1914.
Greiðasala hafði verið í Tryggvaskála frá 1901.
Sigtún keypti 1917 Daníel Daníelsson (1866-1937), tengdafaðir Egils í Sigtúnum Thorarensen (1897-1961), fyrsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags Árnesinga, þ.e., frá 1930.
Daníel varð síðar dyravörður í Stjórnarráðinu og frægur fyrir að flengríða til Klepps 1930 með afsetningarbréf Jónasar Jónssonar, ráðherra, til Helga Tómassonar, læknis.
Heimildir:
Erlingur Brynjólfsson: Baráttan við fjallið; Jón Hjartarson, Saga Akueyrar III, 223, Öldin okkar.

Spiritismi:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1907

  • Bjóða má nú ekki í
  • Skal fræðsla metin góð og gild
  • Allir klerkar á opinber laun
  • Í Önundarfirði ein stóð höll
  • Falskir miðlar féllu í trans
← 1907Bjóða má nú ekki í1907 →Skal fræðsla metin góð og gild