Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1903
1903
1903

Drukknaði Ólafur Davíðsson fróði.

Hljóðbrot0:00

Lag Hver veit, hve nærri' er ævi endi

DDrukknaði Ólafur Davíðsson fróði.Um Dómkirkjuorganista skipt.Síðast kosið í heyrenda hljóðiþá Hannesi til valda lyft.Hafsins silfur og hingað óðen hertur þorskur féll úr móð.

Siglufjarðar sköpum skjóttskipti að norskir kunnu.Síldin varð að silfri fljóttsöltuð oní tunnu.

Jafnkosta var Jónas viðjárningar og söngaflinn sem og orgeliðundirleik og töng.

Brynjólfur þekkt Bakkus mun​betur en nefndin vildi​er sagðist við það ekki un-​a og leiðir skildi.​

Glúmur Gylfason · 1903

Heimildir og samhengi

+ Ólafur f. 1862, náttúrufræðingur Davíðsson, prests Hofi, Hörgárdal, Guðmundssonar hrstj. Vindhæli, og k.h. Sigríðar (1839-1920) dóttur Ólafs Briem (1808-1859) trésm. Grund, sonar Valgerðar (1822). ÓD gaf út vikivakasöfn og safnaði þjóðsögum.
Ólafur kom síðast við hjá Ólöfu skáldi á Hlöðum á heimleið úr söfnunarferð með þungan kassa á baki sér með grjóti og plöntum þá er hann hugðist ríða um Hörgá.
Ólöf orti hrífandi ljóð eftir Ólaf. - birt í Eldur á Möðruvöllum, bls. 831 ásamt ummælum Davíðs skálds Stefánssonar: ,,Hann vann sitt verk, krafðist einskis af öðrum, og tók ekki neitt frá neinum. Hann lifði sínu eigin lífi og hafði til þess fullan rétt”.
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Fjallað er um Ólaf í bókinni ,,Þeir segja margt í sendibréfum 1" frá bls. 219. Þar eru og sendibréf sem hann hefur skrifað.

+ Jónas Helgason f. 1839, dómorganisti frá 1877, en þá lést fyrsti dómorganistinn - frá 1840 - Pétur Guðjónsson.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Við orgelinu tók Brynjólfur Þorláksson (1867-1950), þetta ár og gegndi til 1913. Sóknarnefnd gerði Brynjólfi að gerast bindindismaður á vín, sem tókst ekki og lauk svo starfi hans við Dómkirkjuna. 2. janúar 1913.

Frá þessu segir á bls. 171 í II. bindi sr. Þóris Stephensen: ,,Dómkirkjan í Reykjavík", og að 1903 hafi fyrst komið fram opinberlega blandaður kór í Dómkirkjunni undir stjórn Brynjólfs Þorlákssonar og söng lögin frá útför forsetahjónanna 1880, sjá 1879.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)

Myndir úr þjóðlífinu, Jón Stefánsson í Gjallarhorni, Akureyri: ,,Kosningaathöfn fór þannig fram ...áður en leynilegar kosningar voru í lög leiddar, að sýslumaður las upp kjörskrána. Sögðu menn til sín þegar nafn þeirra var nefnt og spyr þá sýslumaður: Hvern kjósið þér? ... Úrslitin þau, að (sýslumaður) Klemens Jónsson fékk 363 atkvæði, Hannes Hafstein 213 og Stefán í Fagraskógi 192". Skráð 1941.

Ágúst á Hofi, Vatnsdal, lýsir í ævisögu, bls. 56 hvernig vínið flaut á kjörfundum t.o.m. 1903 á meðan atkvæði voru greidd í heyrenda hljóði. ,,...foringjar reyndu að hýrga liðsmenn sína hæfilega, en vandinn var sá mestur ... að menn yrðu ekki ofurölvi áður en þeir kysu".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

24. nóv. kom Hannes Hafstein frá Kaupmannahöfn sem ráðherraefni stjórnarinnar, skipaður 13. nóv.til að taka við embættinu 01.02. 1904.
Höfðu þeir Valtýr Guðmundsson báðir verið í Kaupmannahöfn, kynnt sig og gengið á fund Íslandsráðherra, Albertis, sem valdi Hannes Hafstein til embættis ráðherra Íslands, sem þá hét ráðgjafi (konungs). Þetta varð eftir stjórnarskipti 1901 þar sem flokkur bænda, Venstre, komst til valda og bauð nú óvænt Íslandi innfæddan ráðherra, sem búsetu hefði í landinu og ábyrgur væri fyrir Alþingi.
Frá 1997 hafði Valtýr gefið upp alla von um þá leið og fengið þingið til að gangast inn á að ráðherrann yrði Íslendingur með aðsetur í Kaupmannahöfn. Áttu allir von á að sá ráðherra yrði Valtýr Guðmundsson.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Síldin kom til Siglufjarðar og Norðmenn með henni.
Skv. ,,Á ströndinni í hálfa öld" var það norski skipstjórinn Tornes Olsen frá Akrahavn sem á Skagafirði fékk 70 tunnur síldar í einu kast 6. júlí með herpinót sem hann hafði fengið hugmynd að í Kanada. T. Olsen landaði fullfermi, 103 tonnum, 8. júlí á Siglufirði.
Heimild: Einars saga Guðfinnssonar, 276.

Aðrir segja öðruvísi frá:
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 8. júlí: ,,Síldarsöltun hófst á Siglufirði. Norskt skip, Marsley, kom 8. júlí með 60-70 tunnur af síld sem veidd var í reknet nóttina áður. Þetta var upphaf síldarævintýrisins sem stóð í 65 ár".
Ári síðar er Hans Falk frá Stafangri kominn til sögunnar nyrðra með hringnót og tvö gufuskip til veiðanna.
Fyrstur Íslendinga með hringnót verður Ágúst Flygenring úr Hafnarfirði 1906 - segir Síldarsaga Íslands, 193, 196.

Björn Dúason telur og á bls. 83 í Síldarævintýrinu á Siglufirði, útg. 1988, að Norðmenn hafi byrjað hringnótaveiðar 26. júí 1904 (í stað rekneta) og þar með hafi síldarævintýrið byrjað. Þar hafi bæði kyn fengið vinnu sem greidd var í peningum út í hönd, sem var fátítt.
Bls. 87: ,,Fregnin um hina gífurlegu uppgripavinnu flaug landshorna milli og fólkið streymdi til Siglufjarðar sem varð á hvers manns vörum".

1879 veiddist síld inni á fjörðum (Eyjaf.) í landnót sem var dregin að landi og síldin háfuð úr. Norðmenn þar fyrst og fremst að verki, sem komu síðan með reknet sem nota mátti á grunnsævi.

Vefursild.is (opnast í nýjum flipa)

Elsta heimild um síldveiði hér við land er frá Páli Vídalín úr riti hans, Deo, Regi, Patriæ, 1699. Þar segir á bls. 66 frá dönskum kaupmanni, Peder Andersen, - nefnir ekki hvar á landinu – sem saltað hafi síld til útflutnings 1697 með hagnaði sem bætti honum tjónið af fjárfellinum það ár.
Tímrit Bókmenntafélagsins, 4. árg. 1883 fjallar um síldveiðar til þess tíma:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Í afmælisriti Kristmundar Bjarnasonar frá Sjávarborg, Fólk og fróðleikur, bls. 57, fjallar Gísli Magnússon um síldveiðar á Skagafirði og gremju Íslendinga árin 1903-1906 þegar útlendingar mokuðu upp síldinni í reknet/hringnót þannig að hún kom ekki inn á firði þar sem landinn beið með dragnótina.

Viktoría Bjarnadóttir, ,,Vökustundir að vestan", bls. 15: ,,Þá var tíðum lásuð síld á voginum við kauptúnið (Bíldudal á fyrstu árum 20. aldar) og var gaman að sjá þegar komið var að bryggju með stóra uppskipunarbáta fulla af glitrandi síldinni".

Í Ránargull, bls. 126 fjallar Jón Þ. Þór um ítarlega um síldveiðar Íslendinga og margt sem þeim við kemur.

Nýtt skjaldarmerki Íslands, hvítur fálki á bláum grunni gilti til 1919, þá landvættamerkið með fánaskildi og kórónu, sem fjarlægð var 1944. Hið eldra, krýndur flattur þorskur, staðfest 1593af ríkisráði, sem sama ár gaf alþingi Íslandsklukkuna sem brotnaði 1720 – en kóngur, Kristján IV. þá, 1593, enn ómyndugur, f. 1577.

Hannes Hafstein hafði á ygri árum hæðst að ,,freslsisglamrinu", t.d. á Þingvallafundinum 1885 með skopstælingu á ,,Öxar við ána". Og þorskmerkið fékk:

,,Heyrðu vort þaklæti, heiðraði fiskur,
hertur og saltaður, úldinn og nýr!
Fyrir þinn verðleika fyllist vor diskur,
frelsi og þjóðmegun til vor þú snýr.

Þú ert oss einlægust þjóðfrelsishetja,
þú ert sem dreginn úr almennings sál.
Mynd þín og fyrirmynd fögur oss hvetja,
föðurlandsástinni hleypa í bál.

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Þráinn Bertelsson hefur það eftir kunningja sínum í ,,Vinir mínir og kunningjar, bls. 169, að þegar í útlöndum var farið að skjóta kúlum með púðri sem hellt var úr dýrshorni í byssyhlaup, þá hafi Íslendingar nýtt sér þá hugmynd til að hella tóbaki í kýrhorn og þaðan í nefið á sér.
þaðan fær Þráinn hugmyndina um skjaldarmerki Íslands.
,,Þar er neftóbakspontan sem er táknræn fyrir íslenskt þjóðerni og ætti að vera í skjaldarmerki okkar". Bls. 170.

Aðrar heimildir: Ævisaga Hannesar Þorsteinssonar, 1960; Ævisaga Hannesar Hafstein eftir Kristján Albertsson; Jón Hjaltason: Saga Akureyrar II, bls. 251; Theódór Friðriksson: Í verum I, bls. 365; Virkir dagar II, bls. 56-57; Fólk og fróðleikur, 1979, bls. 57; Þórir Stephensen, Dómkirkjan í Reykjavík.
Vefurforsaetisraduneyti.is (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1903

  • Jafnkosta var Jónas við
← 1902Halldór Laxness léði svar1903 →Jafnkosta var Jónas við