Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1904
1904
1904

Hannes kann að yrkja,

Hljóðbrot0:00

Lag Vertu hjá mér, Dísa

HHannes kann að yrkja,andann gáfur styrkja /elskar storminn,leysir hvern pólitískan hnút. /Í Hafnarfirði Lækinntil ljósa tókst að virkja /og leggur þar upp afla sinnbotnvörpungurinn Coot.

Glúmur Gylfason · 1904

Heimildir og samhengi

Íslenskur Íslandsráðherra búsettur á Íslandi, Hannes Hafstein (1861-1922).


Þegar Íslendingur varð ráðherra Íslandsmála varð fjandinn fyrir alvöru laus á alþingi.

Guðmundur Hálfdánarson, bls. 39 í Íslensk Þjóðfélagsþróun á 19. öld: ,,Á meðan frjálslyndir og íhaldssamir áttu sameiginlegan óvin, þ. e., dönsku stjórnina, þá kom ekki svo mjög að sök að þá greindi á um flest annað".

Allt varð nú landráðasök: ríkisráðsákvæði, sími, fánalitir, uppkastið...
Um það segir Einar Laxness, Saga og minni, bls. 34: ,,nú taka þau (blöðin) að fyllast æsiskrifum, rógi og svívirðingum í garð andstæðinga fremur en nokkru sinni fyrr”.

Nokkrir Íslendingar kaupa Coot, fyrsta togarann, hingað til lands, smíðaður í Glasgow 1892, 141,5 brl., skipstjóri Indriði Gottsveinsson (1869-1946), en vélstjórar erlendir í fyrstu, en þá íslenskir, sem lært höfðu meðferð véla á hvalbátum Ellefsens og Bergs vestra.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Coot kom til heimahafnar í Hafnarfirði 6. mars 1905. Mest var lagt upp þar og oftast daglega í salt. Þar með tekur Hafnarfjörður á ný forystu í útgerð, en þar rak kóngur talsverða skútuútgerð á 8. og 9. áratug 18. aldar, aðallega með erlendum sjó- og iðnaðarmönnum - vistarbandið batt Íslendinga við sveitirnar - og í Hafnarfirði lét Bjarni Sívertsen (sjá 1808), kaup- og útgerðarmaður, smíða haffærar skútur frá 1803 eftir að hafa keypt eina slíka í Kh. 8 lesta og gert út ,,laust fyrir aldamótin 1800" (Lúðvík Geirsson: Höfuðstaður verslunar, bls. 117), en Ólafur Thorlacius (1761-1815) gerði skútur út frá Bíldudal frá 1806.
Íbúatala Hafnarfjarðar þrefaldaðist á 8 fyrstu árum 20. aldar, úr 500 í 1500 og varð sérstakt bæjarfélag. Óljóst er um upphaflegt eignarhald á Coot, en átök með hluthöfum. Þeirra á meðal Einar Þorgilsson (1865-1934) og August Flygenring (1865-1932) . Má lesa nánar um þau mál frá bls. 129 og 166 í ævisögu þess fyrrnefnda, eftir Ásgeir Jakobsson, sjá og bls. 178 með hliðsjón af bls. 128.

Gísli Halldórsson, verkfr., Faðir minn, bls. 296: ,,Jóhannes Reykdal ...hafði ...hafið undirbúning að virkjun fyrir Hafnarfjörð, en til þess skorti hann sjálfan kunnáttu. Er nú Halldór (Guðmundsson, rafmagnsfræðingur frá Þýskalandi, bróðir Eyjólfs frá Hvoli, Mýrdal) fenginn til Hafnarfjarðar og byggir hann þar fyrstu rafveitu landsins og lýsir Fjörðinn 1904."
Jóhannes Reykdal reisti þá rafvætt trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði, hafði 10 kýr og seldi mjólk í Firðinum. Hann lánaði Sigurði Greipssyni á Geysi allt timbur til íþróttaskólans í ótiltekinn tíma og fylgdi smiður með. Sjá 1926.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Dönsk verslun á Patreksfirði gerði út togarann Thor 1899 til 1901.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimildir og tilvísanir:
Skjalborgarsogusafn.is (opnast í nýjum flipa)
Smári Geirsson, Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915, bls. 414.
Valdimar Haukur Gíslason, Vestanglæður, bls. 242 (vélstjórar).
Lúðvík Geirsson, Höfuðstaður verslunar (Hfj.), bls. 84.
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 12. desember:
"Rafljós voru kveikt á Íslandi í fyrsta sinn. Rafmagnið var frá vatnsaflsstöð Jóhannesar Reykdal við Lækinn í Hafnarfirði". (Sjá 1911).
Vefurrafis.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurrafis.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hannes Hafstein:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1904

  • Vinstriflokkur hjó á hnút
  • Siglufjarðar sköpum skjótt
← 1903Jafnkosta var Jónas við1904 →Vinstriflokkur hjó á hnút