Austfirðingum opnast heimur

Austfirðingum opnast heimurupp á gáttSeyðfirðingar tungum tveimurtala dátt.

Glúmur Gylfason · 1901

Heimildir og samhengi

Árið 1902 er Þorsteinn Erlingsson orðinn ritstjóri Eimreiðarinnar, tímarits Valtýs Guðmundssonar. Þá ritar hann þar eftirfarandi um Seyðisfjörð, en þar var hann ritstjóri Bjarka áður:
,,Hér heyra menn margfalt meira til útlendra tungna, norsku, dönsku og jafnvel færeysku, en í nokkrum hinna bæjanna, bæði á götu og í húsum, því þó komið sé í hús þar sem húsið er allt íslenskt, þá getur það verið hrein hending, hvort þar er töluð íslenska, danska eða norska þá stundina, því það getur þá farið eftir því, hver gestur er kominn. Þetta finnst aðkomumönnum óviðkunnanlegt, og ef til vill óskemmtilegt og óþjóðlegt, en Seyðfirðinga ónáðar það ekki, þeim er þetta daglegt brauð, daglegur hljómur og þeim er flestum tungurnar jafntamar".

Önnur vísa er hér um 1901 helguð Seyðisfirði það ár. Hennar skýringar eiga og við hér.

Auk Seyðfirsku blaðanna Austra og Bjarka hóf þar göngu sína 1895 (vinnu)kvennablaðið Framsókn, sem 1898 var selt til Reykjavíkur. Stefán Bogi Sveinsson fjallar um Framsókn í SÖGU LX-I 2022, bls. 196: ,,Athygli vekur að blaðið er skrifað á einum þremur tungumálum og er það sérstaklega tekið fram í ávarpi ritnefndar í sjött tölublaði, að þær sem það vilji megi allt eins skrifa á dönsku eða norsku eins og íslensku. Þá höfðu enda áður birst greinar á báðum þessum erlendu málum í öðru til þriðja tölublaði".

Vefurprentsogusetur.is (opnast í nýjum flipa)

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir