Úr lifenda tölu var Lúðvíki svipt
Lag Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18
Úr lifenda tölu var Lúðvíki sviptsem lysti að Ólafur fyki,,var þá sem steini af Stephensen lyft”stefnunni trúði að yrði nú riften stjórnin þó hélt sínu striki.
Heimildir og samhengi
Skúli Magnússon og Jón Eiríksson voru menn sem tókst að gegna hæstu embættum ríkisins með sóma.
Hundrað árum síðar kom svo Hannes Hafstein, ráðherra Íslands, og tókst m.a. að berja í gegn síma.
Í kjölfar harðinda 18. aldar ákvað stjórnin 1787 að selja - og þá helst ábúendum - konungs- og kirkjujarðir með góðum kjörum sem urðu enn betri vegna óðaverðbólgu á árum Napóleonsstyrjaldanna.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Sr. Pétur Guðmundsson, Annáll 19. aldar I, bls. 58: ,,Um vorið (1803) kom út Loðvík Erichsen, settur amtmaður, og var að hans undirlagi Ólafur stiptamtmaður 10. júní (1803) leystur frá embættisstörfum fyrst um sinn".
Am. Ludvig Erichsen (1766-1804), kærði 1803 stam. Ólaf Stefánsson (1731-1812) fyrir einkavinavæðingu við söluna, en lést nú 7. maí, en Ólafi var vikið 10/6 1803 á meðan rannsókn fór fram og endanlega 1806með 2/3 eftirlauna.
Einu sinni áður hafði Íslendingi verið trúað fyrir stiftamtmannsvaldi og fór það á sömu leið. Það var Oddur Sigurðsson, sjá 1708, 1713, 1716, 1721, 1724, 1725, 1726, 1728, 1733, 1741.
Ludvig var sonur Jóns Eiríkssonar konferenzráðs (1728-1787), er hafði einmitt skrifað greinargerð 22/2 1785 um væntanlega sölu stólseigna og þótti ,,ákvörðunin hroðvirknisleg og vildi rannsaka málið betur".
Þessi sonur Jóns Eiríkssonar bar nafn Ludvigs Harboe (1742), síðast Sjálandsbiskup, er tekið hafði Jón úr Skálholtsskóla og með sér til Danmerkur og Noregs, þar sem hann hélt námi áfram og varð síðar framámaður bæði í skóla- og stjórnmálum þar ytra.
Einar Hreinsson í Fyrsta ráðstefnuriti annars íslenska söguþingsins, bls. 329:
,,Við yfirheyrslur 1803 var Ólafur spurður hvað hæft væri í þeim fullyrðingum leiguliða á landi Reykjavíkurbæjar, að hann hefði hótað þeim með fangelsisstraffi og hrepppaflutningum ef þeir létu ekki að vilja hans. Ólafur neitaði að svara spurningunni og bar því við að aðdróttun þessi gengi of nærri heiðri sínum og embættisvirðingu". Ólafur telur sig þarna réttilega hafa stöðu aðalsmanns, segir Einar, sem enn höfðu forréttindi gagnvart lögunum. Í Frakklandi urðu allir jafnir fyrir lögunum með stjórnarskránni ,,Code civil des Français" 1804.
Heimildir og tilvísanir:
,,Var þá sem steini af Ólafi létt”, stendur í Reykjavíkurannál Jóns biskups Helgasonar við árið 1804; Um sölu Stólsjarða fjallar Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, Rvk. 2006 á bls. 631; Guðmundur Magnússon, Íslensku ættarveldin, bls. 2, 82, 99; Dómkirkjan í Reykjavík I, bls. 96 eftir Þóri Stephensen.
Saga Biskupsstólanna, bls. 657-658.