Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1802
1802
1802

Bringukolls fann klerkur þjóf

Hljóðbrot0:00

Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830

BBringukolls fann klerkur þjófkauða ná- sér tengdanekki lengi götur grófí gálga batt og hengdi' h'ann.

Glúmur Gylfason · 1802

Heimildir og samhengi

Íslendingabók um Árna Rafnsson, f. 1783: ,,Stal bringukolli og séra Jón í Glæsibæ hengdi hann”.

Gísli Konráðsson, Bólu-Hjálmars saga II: ,,Árni umrenningur var Rafnsson, bróðurson Helgu, konu sjera Jóns Þorvarðarsonar. Hann var ónytjungur og talinn þjófgefinn. Hann var tíður gestur í Glæsibæ því Helga lét hann njóta frændsemi. Og þar var hann hvítasunnumorguninn síðasta sem hann lifði.
Þá kom prestur að honum er hann var að ná sér í bringukoll... vildi prestur venja Árna af hvinnsku: fór með hann út í hjall og hengdi hann þar. En þá er prestur skar hann ofan var hann dauður og hafði þó ei hangið nema örskamma stund. Presti varð mjög um þetta. Enginn kærði hann fyrir það. En ýmsir höfðu kveðið um það”.

Sr. Jón Þorvarðarson (1763-1848) var prestur í Glæsibæ 1802-1846.
Dánarárs Árna er ekki getið í heimildum. Giskað á að hafi verið ófermdur unglingur fyrst enginn kærði og prestur átti alls kostar við hann. Því sett hér á 1802 og líka vegna þess að Espólín segir árið 1805: ,,Áður settu sýslumenn og stundum hreppstjórar og prestar hvern þann í gapastokk dómlaust, er þess þótti verður".

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 361
segir frá smalapilti, Þorsteini nokkrum, sem tók til reiðar gæðing húsbónda síns, Jóns Ólafssonar hreppstjóra í Síðumúla - bóndi þar 1777-1809. Ekki vildi hreppstjóri láta þess óhegnt fremur en Hrafnkell Freysgoði. ,,En nú var hægurinn hjá með refsitæki þar í Síðumúla. Í kirkjuþilinu hékk gapastokkur. Með honum var öllum ógnað sem á einhvern hátt brutu á móti almennum siðareglum. Skyldu þeir seku hengjast í hann á messudögum ...meðan messan stóð yfir ...ef þeir voru þá ekki dauðir áður, sem ekki var dæmalaust”.
Úrdráttur: Þegar til átti að taka hafði þó virtur bóndi unnið skemmdir á gapastokknum og var hann ónýtur með öllu og aldrei gerður nothæfur eftir þetta.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1802

  • Norðanlands er stríð og streita
  • Djöfull Steinku dáraði
← 1802Djöfull Steinku dáraði1803 →Á mölinni eiga margir bágt