Beittu álfar brögðum þar
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Beittu álfar brögðum þarbóndi þoldi skellhreppstjórasonur heillaður varhvarf inn í Spákonufell.
Heimildir og samhengi
Gísli Konráðsson, Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Ísafoldarprentsmiðja 1941, bls. 76:
„Davíð Guðmundsson bjó á Spákonufelli eftir föður sinn og átti Katrínu Einarsdóttur, Finnssonar frá Ey. Voru þeirra synir Einar, Skarphéðinn, Guðmundur og Davíð. Svo bar til það ár er Einar var lítt á legg kominn, er hann kom neðan úr Höfðakaupstað eina jólanótt, að hann hvarf og hefir aldrei síðan fundizt eða til hans spurzt, hvað vandlega sem leitað var. Trúði Katrín móðir hans eigi öðru en heillaður væri hann í Spákonufellsborg, því að trúað var, að þar væri huldufólksbær, og margar sagnir um að svo mundi vera".
Næst fjallar Gísli um atburði frá 1810, en Íslendingabók telur Einar fæddan 1794 og segir hans getið í manntalinu 1801, en látinn 1815. Er það vegna þess að hann finnst ekki í manntalinu 1816?
Dæmi hver fyrir sig þótt hér sé valið 1809.