Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1809
1809
1809

Í Flatey Schevings framabraut

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

ÍÍ Flatey Schevings framabrauten forgefins Jörgens amtlítillar kóngsins náðar nautnógu varð ríkur samten arrestdelar dugðu skammtdró af Jörgen óðumsjálfum gerðist tugthús tamtá Tasmaníuslóðum.

Glúmur Gylfason · 1809

Heimildir og samhengi

Jörgen Jörgensen (1780-1841), Jörundur hundadagakonungur, dubbaði 6 Íslendinga til lífvarða í einkennisklæðum. Af tilefni valdatöku Friðriks VI. höfðu flestir fangar verið náðaðir 9. júní. Þegar Jörundur kom, 25/6, náðaði hann þrjá til viðbótar og þá aðeins einn eftir í arreestinu. Vitað er að einn fyrrum fangi, Jónas Jónsson (1778-1840), gerðist lífvörður Jörundar og flutti sem slíkur aftur í Múrinn. Veldi Jörundar stóð til 22. ágúst.

Hannes Pétursson fjallar um Jörund í Heimildaþáttum l, bls. 63:
,,Jörgen steypti einveldi Danakonungs á Íslandi og byrjaði verkið á því ... að hefja breska flaggið að húni á skipi Trampes greifa, en fanga stiftamtmann sjálfan. ... Því næst lét hann rigna niður auglýsingum og stjórnarboðum, stofnaði riddaralið ellefu sveina, mest lausingja, fékk þeim bláar treyjur, hross taglstýfð að enskum sið, reiðkápur, einnig korða og pístólur - kunnu þeir með hvorugt að fara - skellti sér upp úr því norður fjöll að sigra kaupmenn og yfirvöld, en lét samtímis hlaða byssuvirki við Reykjavíkurhöfn".

Guðmundi Scheving (1777-1837), settum sm. Haga, Barðaströnd (sbr. 1802), barst ekki vegna stríðsins (sjá 1813) svar við afsögn sinni 1806 en vikið 1812 vegna fylgisspektar við Jörund - kóngurinn í 3ju vísulínu er Friðrik VI.). Guðmundur keypti þá hálfa Flatey, verslaði þar, gerði út þilskip, heppnaðist flest og naut þar góðra skipasmiða og formanna. Gerðist auðmaður. Hann var einn (fárra) samtímamanna sinna á því að Íslendingum mætti (gæti) fjölga með breyttri afstöðu til þilskipaútgerðar, sem var bændum og jarðeigendum þyrnir í augum ... ætla má að hvergi annars staðar í landinu hafi þá gætt slíkra umbrota sem í Flatey".
Segir Lúðvík Kristjánsson í Vestrænu, bls. 202, og birtir úrdrátt úr ritgerð G. Sch. um þetta efni.
Um Guðmund Scheving fjallar Jón Þ. Þór í Sjósókn og sjávarfang, bls. 174.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Jörundur var spilafíkill og lenti margsinnis í skuldafangelsi hjá Bretum og síðast sendur fangi til Tasmaníu og dó þar sextugur 20/1 1841, og var þá orðinn fangavörður.

Jóhann Hjaltason, Frá Djúpi og Ströndum, bls. 205:
,,
Um Guðmund Scheving var þetta kveðið: Sigldur stúdent, sélegur, / sýslumaður kallaður/átta daga amtmaður / agent, bóndi, kaupmaður".

Skýring á ,,deli" er við 1869.

Aðrar heimildir: Byltingin 1809, Helgi P. Briem, Rvk. 1936; Lífvörður Jörundar hundadagakóngs,Vestfirska forlagið 2008

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hugsi einhver sem svo, að Ísland hefði verið betur statt með Englendingum en Dönum þá skyldu þeir hinir sömu kynna sér kaflann ,,Kartaflan og konungríkið" bls. 47 i Ritsafni 3 Sverris Kristjánssonar.

Myndir

Einnig frá árinu 1809

  • Beittu álfar brögðum þar
← 1808Að lánist fara við lög á svig1809 →Beittu álfar brögðum þar