Að lánist fara við lög á svig
Lag Sá frjáls við lögmál
Að lánist fara við lög á svigog landsins stoðir brestitrúum að endurtaki sigá tvö hundruð ára fresti.
Á kaptein Gilpin glæpastuðhans gneistaflugið bíðuren biðjum: ,,Ísland blessi Guð"og Banks þá ekki síður.
Heimildir og samhengi
Í skugga Jörundar hundadagakonungs (1809) stendur að ósekju Gilpin, kapteinn á ensku herskipi sem tók land í Hafnarfirði 23. júlí, og sem með tilstyrk 24 manna áhafnar stríðsskips, ss Salomine, hafði mótspyrnulaust á brott með sér Landsins kassa, Jarðabókarsjóðinn, með 34.995 ríkisdölum og 35 skildingum.
Sjóðurinn var ekki konungseign heldur eyrnamerktur Íslandi (Jarðabókarsjóðurinn 1774) og því skilað 1812, þótt England og Danmörk ættu þá í styrjöld.
Herstyrk Gilpins má Trampe greifi hafa þekkt 1851þegar hann áræddi að slíta Þjóðfundinum með 25 manna herdeild að baki sér.
,,Gneistaflug” vísar til annars lífs í iðrum Heklu, þar sem eldur geisar- sbr. Jónas 1838: ,,...í ógnadjúpi, hörðum vafin dróma, skelfing og dauði dvelja langar stundir".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
1812 fékk Bjarni kaup- og útgerðarmaður Sívertsen (1763-1833) sjóðinn afhentan í Leith og hlaut fyrir riddaratign af Dannebrog, en Magnús Stephensen (1800, 1801, 1833) aðeins titil etatsráðs, þótt hann fengi sir Josef Banks til að vinna að málinu og lausn Íslandsskipa 1808 sem Bretar tóku herfangi þá, en ekki hafði verið stjórnmálasamband milli landanna eftir árás Breta á Kaupmannahöfn 2. sept. 1807.
Launaði Banks svo gestrisni Ólafs, föður Magnúsar, á Innra-Hólmi 1772 og mundi Magnús sem 10 ára undrabarn þar, - sjá 1767.
Íslandsför Banks 1772 nefnir Jakob Benediktsson í Skírnir 1950, fyrsta skemmtiferðahópinn sem varpaði akkerum við Íslandsstrendur.
Vefurhi.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Frásögn Bjarna Sívertsen af þessu máli og sínum þætti þar í birtir Lúðvík Geirsson á bls. 122 í ,,Höfuðstaður verslunar".
Á málþingi í HÍ 16. janúar 2018 lét dr. Anna Agnarsdóttir þau orð falla, að á þeim tíma hafi Magnús mátt heita landráðamaður með Dönum fyrir að hafa þetta samband við óvininn. (1813).
Hannes Pétursson fjallar um komu Gilpins í Heimildaþáttum l, bls. 51.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurblog.dv.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Vefurhannesgi.blog.is (opnast í nýjum flipa)