Hægri skyldi af höndin fim
Lag Yfir kaldan eyðisand
Hægri skyldi af höndin fimmeð hinni Oddur snæðihalda mætti leyndarlimef léti eyru bæði.
Heimildir og samhengi
Eftir að Fitjaannáll II greinir á bls. 96 frá barnasölunni til Austfjarða 1610 kemur í beinu framhaldi eftirfarandi saga af séra Oddi Þorsteinssyni sem gerist um 1554, en dóminn kvað upp lm. Oddur Gottskálksson.
Þar sem annað er ekki kunnugt skal því trúað að annállinn telji 1610 vera dánarár Odds Þorsteinssonar, en hann lifði með vissu fram yfir aldamótin 1600.
Fitjaannáll II: ,,Þorstein Guðmundsson, Andréssonar, Guðmundssonar ríka Arasonar er hvarf 1448 - og Jarþrúðar, dóttur Þorleifs (d.1486), Björnssonar ríka á Skarði sem enskir drápu á Rifi 1467 - var þriðji og síðasti maður Þórunnar á Grund, dóttur Jóns biskups Arasonar. Hann átti 5 eða 6 launbörn (áður). Eitt þeirra var séra Oddur sem átti Geirdísi dóttur séra Torfa Jónssonar í Saurbæ norður. Hann (þ.e., sr. Oddur) féll með systur hennar, Arnfríði, sem þá var barn að aldri. Var sagt að hann hefði komist yfir hana með konstrum og nauðgað henni. Hér fyrir var séra Oddur dæmdur ...útlægur af Norðlendingafjórðungi alla sína ævi og af honum hægri höndin nema valdsmaður vildi meiri miskunn á gera, og skera af honum bæði eyrun ef hann gyldi ekki ráðspjöllin fyrir þessa stúlku... en höfuðsmaðurinn, Páll Stígsson, náðaði séra Odd svo hann hélt lífinu og fékk seinna aptur prestskapinn".
Endaði Oddur síðast sem prestur á Óspakseyri (Ísl. æviskrár).
Þar með skilst að höndinni hafi Oddur haldið, en einhentur fékk prestur ekki blessað, sbr. 1605.