Vestan úr Gandvík verður sagt
Lag Augun mín og augun þín
Vestan úr Gandvík verður sagtá vofum glöggt menn þreifimeð höldum þar í hæstri akthaldinn Galdra-Leifi.
Heimildir og samhengi
Skarðsárannáll I, 199: ,,Apturganga þreifanleg á Vestfjörðum."
Neðanmáls þar: ,,Það hefur verið hinn nafnkunni Snæfjalladraugur er Jón lærði og Galdra-Leifi fengust við". Sjá 1612.
Ballarárannáll III, 191: ,,Gekk draugur á Snæfjöllum með grjótkast nótt og dag allan veturinn".
Jón lærði Guðmundsson kvað niður Snæfjalladrauginn 1612 með kvæðinu Fjandafæla og dæmdur fyrir það 1631. JG hafði þá í riti haldið fram málstað Baska sem vegnir voru á Vestfjörðum1615, en þar þótti sm. Ara í Ögri sér ögrað sem og var.
Þótt vísað væri úr landi hlaut Jón samt skjól hjá ýmsum, m.a. sýslumönnum, sonum Gísla lm. Þórðarsonar, og e.t.v. þess vegna ekki hirtur til bana eins og gert var 1698 í sambærilegu tilviki er múgamaður sagði sannleikann um séra Halldór Pálsson Björnssonar í Selárdal. Sjá 1631.
Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".
Sjá 1612, 1617 og 1631, um Jón lærða og Fjandafælu hans.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)