Ofan á hönd Jóns hellan féll
Lag Sá frjáls við lögmál
Ofan á hönd Jóns hellan féllog hún varð ekki föguren þrátt vér megum þessum skellþakka Biskupasögur.
Heimildir og samhengi
Séra Jón Egilsson (1548 - ~1636), Hrepphólum, hættir prestskap eftir þetta vegna slyss, er steinn sem hann ætlaði til bæjarhellu féll í far sitt aftur og urðu fingur vinstri handar prests á milli og liðu tvö dægur áður en járnkallar bárust frá Skálholti til þess að losa steininn, en höndin varð presti ónýt, þ.e., fékk ekki blessað söfnuðinn. Lét af prestskap upp úr því. Tók Oddur biskup við honum í Skálholt 1608 þar sem hann skráði biskupasögur frá siðbreytingu og er það fyrsti annáll sem ritaður var frá lokum Nýja annáls sem lýkur 1430.
Frásagnir af atburði þessum eru margar og ósamhljóða. Á bls. 18 til 19 á eftirfarandi slóð eru vitnisburðir Jóns Espolín og Finns biskups í samantekt Jóns Sigurðssonar.
Safn til sögu Íslands, I, 18: ,,Oddur biskup var kunnur að því, að hann dró fram ættingja sína meir en flestir aðrir, og 1591 hafði hann útvegað bróður sínum, séra Sigurði, Breiðabólstað í Fljótshlíð, og fengið einhvern veginn séra Pál Erasmusson til að sleppa þeim stað." Séra Páll hafði þó konungsveitingu fyrir þessu, þá besta brauði landsins. Fékk Erasmus svo Hrepphóla eða þjónaði þar, eftir að Oddur kallaði séra Jón Egisson þaðan eftir slysið 1605.
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)
Jón Egilsson var bróðir Ólafs prests í Vestmannaeyjum, þess er ,,Tyrkir” rændu og þeir dóttursynir Sigmundar Eyjólfssonar, þess er biskup var í 19 daga 1537.
Sbr. Alfræðisv.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa)
Vefurfila.is (opnast í nýjum flipa)
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Mynd Mats Vibe Lund af Hrepphólum:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)