Kóngur bannar að krenkja lík
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Kóngur bannar að krenkja líkkveikja í þeim og brennaen drauga ásókn engu glíkergir leita kvenna.
Heimildir og samhengi
Kristján IV. sendir tilskipun sem bannar Íslendingum að grafa upp lík og brenna, ganga milli bols og höfuðs og færa til þjós, sem tíðkað var þegar sá látni hafði haft í heitingum að ganga aftur. Dæmi þess er fjallað um hér 1598 og 1787.
1699 lét lm. L. Gottrup þó hengja og síðan brenna lík þjófs, sem heitast hafði við bónda þann er handsamaði hann og sagst mundu ganga aftur og drepa hann innan þriggja daga. (Annálar).
Eiðstaf kvenna sem sóru sig fríar af karlmönnum má líka skilja svo að geri ráð fyrir því að (þá) dauður maður (draugur?) gæti hafa verið að verki.
Eiður Þórdísar Halldórsdóttur að Vallalaug vorið 1712: ,,...fri att verre for naturlig Omgengelse til barns Vandfangelse for alle mandspersoner, leffendis och döde". (Tekið af bls. 60 í "Yfir aldahaf" Sigurðar Ólasonar).
Í sögnum Gísla Konráðssonar er enn mikill draugagangur á 18. öld, sem kemur jafnvel til kasta Alþingis. Draugar kveðnir upp og niður og sendir á milli bæja til myrkraverka. Þar er jafnvel draugur vakinn upp til að verjast ásókn annars draugs og vottar nefndir að glímu milli tveggja slíkra að Hallárdal á Skaga.
(Saga Skagstrendinga og Skagamanna, Ísafoldarprentsmiðja 1941, bls. 27).
Svo seint sem laust fyrir miðja 19. öld varð á Svalbarði í Þistilfirði að skammta Írafells-Móra jafnt og prestinum, sr. Jóni Benediktssyni (1772-1862), en kona hans var úr Kjósinni eins og Móri og fylgdi hann henni. Með aðstoð annars kunnáttumanns, Galdra-Eiríks á Ormarslóni (f. 1791) náði séra Jón um síðir að kveða Írafells-Móra niður ef trúa má Þistlum, bls. 52, bókin kom út 2010. Kjósverjar sumir meina Móra enn á ferli.
Helgi Hannesson, Þykkskinna, bls. 44/45: ,,Frá ómunatíð var tilvera drauga talin óyggjandi. Nú halda margir þá hugarburð einn. ...Íslenskir draugar voru ...útlagasveit í sífelldu stríði við sambýlisfólk sitt í landinu. ...Óttinn við drauga er orðinn lítill enda fækkar þeim óðum. Vera kann að þeir verði aldauða bráðum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)