Að Jóni á Leirá bárust bönd
Lag Einu sinni átti ég hest - Bj.Þ. 830
Lag Austankaldinn á oss blés - Stúd. 86
Að Jóni á Leirá bárust böndþá býsn af munntóbakií skemmu ómerkt upp á röndultu af hurðarbaki.
Áður hafði hótað skeiðhverja síðan bar af leiðsvo vinna mátti að þvi eiðað eigi hefði magnað seið.
Heimildir og samhengi
Fógeti á Bessastöðum fékk þá ótrúverðugu skýringu frá sm. Jóni Vigfússyni (1643-1690) á Leirá, að tóbakið hefði hann gert upptækt á Skipaskaga hjá ófríhöndlaranum Torfa Hákonarsyni Bjarnasonar - er var þremenningur við Jón - ættaður frá Keldum - og væri rétt ófarið til Bessastaða í fógetans vörslu þar. Hvorki var Jón sektaður né hýddur eins og búast hefði mátt við, en sýsluna missti hann þó 1672, en hækkaður í tign, sjá 1673. Enn, 1688, var Jón, þá Hólabiskup, kærður fyrir tóbaksprang og slapp betur frá því máli en flestir aðrir hefðu gert. Hann fékk viðurnefnið Bauka-Jón af þessum tóbaksmálum. (1672, 1673, 1674, 1690).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Jón hafði að sögn Vincents nokkurs Nielsonar haft í heitingum 1670 við skipstjóra Straumfjarðarkaupskipsins sem síðan strandaði við Kotfjörur í Landeyjum og fórust tveir menn. Jóni var á alþingi 1671 gert – eða öllu heldur: fékk - að sverja fyrir galdratilburði og þar við sat á sjálfri brennuöldinni. Eitthvað hefur Bauka-Jón haft við sig!
(Heimild: Jón Þ. Þór, Bauka-Jón, 72).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þráinn Bertelsson hefur það eftir kunningja sínum í Vinir mínir og kunningjar, bls. 169, að þegar í útlöndum var farið að skjóta kúlum með púðri sem hellt var úr dýrshorni í byssyhlaup, þá hafi Íslendingar nýtt sér þá hugmynd til að hella tóbaki í kýrhorn og þaðan í nefið á sér.