Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1673
1673
1673

Bauks varð ekki buddan geld

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

BBauks varð ekki buddan geldbýsn að upp ei þornigagn að múta Griffenfeldmeð gulli og silfurhorni.Klókur hafði' á kóngi takkóngur vildi' h'ann heyra' ájá, heilladísir báru blakaf Bauka-Jóni á Leirá

Glúmur Gylfason · 1673

Heimildir og samhengi

Bauka-Jón Vigfússon, sem dæmdur var 1672 frá sýslu, gengur á fundi kanslara konungs, Griffenfelds, og nær sýknu, þiggur magistersnafn í guðfræði og fái biskupsembætti þegar losni. Talið að 1.000 rd. hafi greitt götu hans og í dánarbúi Griffenfelds fannst silfurbúið nautshorn, fagurlega slípað og skreytt, sem gæti verið sömu ættar (1677). Ekki þótti óhætt að Jón tæki vígslu ytra þar sem vígslugjafar hefðu spurt hann út úr fræðunum, en hann hafði þó reyndar verið tvö ár í Kaupmannahöfn og orðið baccalaureus í heimspeki við háskólann 1666. Foreldra Jóns þessa yngra Vigfússonar er áður að góðu getið 1608, 1643, 1647, 1648.
Kona Bauka-Jóns var Guðríður (~1645-1707) Þórðardóttir prests og ættfræðings í Hítardal, er fyrstur Íslendinga lauk 1629 prófgráðunni attestatus, Jónssonar prests, Hítardal, Guðmundssonar, en móðir Guðríðar var Helga Árnadóttir lm. Oddssonar.
Afkomendur Jóns og Guðríðar hafa margir náð langt á valda- og menntabrautum allt til vorra daga. (1672,1673, 1674, 1690).

(Aðalheimild: Jón Þ. Þór, Bauka-Jón).

Vefurshutterstock.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurtwitter.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1672Vígslu ytra Þórður þá1674 →Margt hafði Jón til brunns að bera