Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1559
1559
1559

Ástleitinn Helgi einatt var

Hljóðbrot0:00

Lag Sá frjáls við lögmál

ÁÁstleitinn Helgi einatt varábóti þó að værisig eftir drósum ötull barog aldrei sá úr færi.

Eftir á hafði Heljarskrekken hjálpráð sér þó ávannþví synda- jafnan selur gekksuður að hitta páfann.

Nú Helga önd við efsta dómörugg og laus við fuðurer það má sjá á þvældum skómað þrisvar gekk hann suður.

.(fuður: log, neistaflug, sbr. fuðra)

Glúmur Gylfason · 1559

Heimildir og samhengi

+ Helgi Höskuldsson. Kemur fyrst við skjöl 1519, þá orðinn ábóti Þingeyraklausturs, og allt til siðbreytingar 1551. Skarðsárannáll segir hann deyja 1561, en Hannes Þorsteinsson segir neðanmáls hans rétta dánarár e.t.v. vera 1559.

Skarðsárannáll, I, 140: ,,Helgi ábóti gekk þrisvar til Róms að taka lausn páfa; hann átti börn við meinalausum konum".

Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, 129: ,,...Helgi Höskuldsson átti lengi í deilum við Jón Arason biskup um óhlýðni í starfi. Lét biskup hann, svo dæmi sé tekið, ganga þrisvar sinnum suður til Rómar til að bæta fyrir barneignir sínar. Sjálfur átti Jón sex börn með fylgikonu sinni, Helgu. Og til að kóróna allt annað, fól Jón syni sínum, Birni, að leysa Helga ábóta af á meðan hann fór í yfirbótargöngur sínar".

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Tilvísanir: Öldin 16.; Inga Huld Hákonardóttir: Fjarri hlýju hjónasængur, 50.

Ath: Núverandi Péturskirkja í Róm er í smíðum frá 1506 til 1626, en kirkja hins heilaga pílagríms sem er til hægri handar við innganginn í Vatikanið var þá orðin eins og myndin sýnir, en endurgerð á 19. öld. Smíði kirkjunnar hófst á 8. öld. Svissnesku lífverðirnir komu til sögunnar 1506 og húsakynni kirkjunnar þeim ætluð 1671, en varðstaða Svisslendinganna byrjar þar við innganginn. Enn í dag er kirkjan falin þeim og óvígðu starfsliði Vatikansins sem tekur þátt í tónlistarflutningi við helgihaldið þar.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1558Vestmannaeyjum flýja frá1560 →Biskupi bænir lesi