Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1572
1572
1572

Já frá Dóru og Jón að prenta

Hljóðbrot0:00

Lag Reið ég Grána yfir ána

JJá frá Dóru og Jón að prentajafnt upp bar á sama árGuð- er brandur bókamenntabregður knífi og lýsir klár.

Glúmur Gylfason · 1572

Heimildir og samhengi

Guðbrandur Þorláksson (~1542-1627) Hólabiskup, kaupir á Breiðabólsstað í Vesturhópi af Jóni Jónssyni, prentsmiðju þá sem faðir hans, Jón Matthíasson, sænski, d. 1567, flutti til Íslands ~1530. Um Jón yngra segir Íslendingabók: ,,Jón Jónsson (~1540 - 1616), prentari á Hólum og bóndi á Núpufelli, sá m.a. um prentun Guðbrandsbiblíu. Guðbrandur Þorláksson biskup lét Hólastól kosta hann til náms í prentiðn”. Var Guðbrandsbiblía 1584fyrsta heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku. Hún er fagurlega lýst (skreytt) upphafsstöfum sem biskup skar út sjálfur.

Þetta sama ár og prentsmiðjan flyst til Hóla kvænist Guðbrandur Halldóru Árnadóttur, sýslumanns Gíslasonar (1570).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um 150 árum síðar stakk Páll Vídalín einhverjum upplýsingum að Steini biskupi og fékk hann til að höfða mál vegna stólsins á hendur erfingjum Guðbrands um það sem enginn vissi, nefnilega: fyrir hvaða peninga, sína eða stólsins, Guðbrandur hefði keypt prentverkið, en deilurnar komu sér vel fyrir Pál.

Björn Þorleifsson Hólabiskup 1697 til 1710, fékk prentsmiðju Guðbrands fyrir 500 rd. frá Brynjólfi Þórðarsyni á Híðarenda. Síðar endurgreitt vegna óljóss eignarréttar. Biskup flutti prentverkið norður á 16 hestum og fékk prentarann með í kaupbæti, Martein Arnoddsson, sem verið hafði við prent í 6 ár erlendis.
(P. E. Ól., Saga Íslendinga V, 244).

1723 ,,skaut Páll Vídalín því í brjóst Steini (Hólabiskupi) að fara í mál við Brynjólf, son Þórðar biskups, og aflaði sér svo stuðnings Steins gegn Brynjólfi" segir Espólín í Sögu frá Skagfirðingum (sjá 1703).
Þegar prentsmiðjumálið komst á það stig, 1724, að kóngur vildi að nefnd kannaði það, þá nennti Brynjólfur ríki ekki að standa í málaferlum og endurgreiddi dalina 500 og runnu þeir til ekkju Björns biskups, Þrúðar Þorsteinsdóttur, en Elín móðir hennar var föðursystir Brynjólfs á Hlíðarenda og þangað fluttist Þrúður 1730 enda barnlaus og dó þar 1738.
Liggur beinast við að Brynjólfur hafi erft Þrúði!

Saga Íslands VI, bls. 137:
,,Guðbrandur biskup gaf konuefni sínu enskan hatt og kvensöðul 1572 og er sagt að slíkir gripir hafi ekki fyrr sést hérlendis og vöktu athygli".

Myndir

Einnig frá árinu 1572

  • Parísarbúar þess verða vottar
← 1571Guðbrandi höndum taka tveim1572 →Parísarbúar þess verða vottar