Vindheima-Jón ei að litlu laut
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Vindheima-Jón ei að litlu lautlaginn eignir rentaGuðbrandur oddinn af oflæti brauter honum þótti henta:Út fyrir Jón þá Jóns- gaf bókjukust afrek menntanágrenni með þeim meira jókmeðan þeir voru að prenta.
Heimildir og samhengi
Vopnahlé með biskupi og lögmanni. Í undirbúningi og e.t.v. byrjað að prenta á Núpufelli lögbókina, Jónsbók, frá 1281. Prentun Jónsbókar lokið 1578.
Jón lm. NV Jónsson bjó hana undir prentun með þeim breytingum sem orðið höfðu, og vandaverk að vinsa úr afbrigðilegar afritanir. Erfiðara þó e.t.v. að fá Guðbrand til samstarfs, en óvinátta var með honum og þeim Svalbarðsbræðrum, sýslumönnunum, Jóni, Sigurði og Páli, bæði valdabarátta í landsmálum og erfðamál. Jón kostaði útgáfuna. Hann átti víða bú, en kenndur við Vindheima á Þelamörk í Eyjafirði. Lögbókin er kennd við annan Jón. Sá var Einarsson, nefndur gelgja, prestur í Hruna og næst síðasti lögsögumaðurinn, en varð lögmaður þegar bókin var lögtekin 1281 og mun hafa unnið að lagaverkinu með ýmsum í Noregi, þ.á.m. Þorvarði Þórarinssyni, Hrafni Oddssyni, Loðni Lepp og konungi, Magnúsi lagabæti Hákonarsyni.
Sjá og1606um viðskipti þeirra lm. Jóns Jónssonar og Guðbrands biskups.