Gregor úthrópar annað rím
Lag Blessuð sólin elskar allt
Gregor úthrópar annað rímhið eldra úr gildi felldisitt þó tekur sama stímsól í Danaveldi.
Heimildir og samhengi
Skarðsárannáll I, 169: ,,Gregorius 13. lætur úthrópa það nýja calendarium; tók nú páfatign”.
Júlíus Cæsar hafði fyrirskipað eldra tímatalið, það Júlíanska, árið 46 f. Krist, og er við hann kennt.
Júlíanska árið var um 11 mínútum of langt og stytti páfinn árið 1582 um 10 daga.
Á þessum árum og lengi enn var mikil andstaða við alla ,,páfavillu” enda átti fjárhagur danska ríkisins margt undir lútherskunni. Það dróst því til ársins 1700 að tímatal Gregors yrði tekið upp í Danaveldi, en þá voru dagarnir orðnir 11 sem fella þurfti burt. Sama andstaða var við páfa í löndum Austurkirkjunnar, sem enn halda kirkjuhátíðir eftir júlíanska tímatalinu.
Kirkjan hafði klofnað 1054 er páfinn í Róm bannfærði patríarkann í Konstantínopel. (1622, 1700).
Júlíanska tímatalið var hér líka kallað gamli stíll, en hið gregorska nýi stíll.
Á sama hátt var gotneskt letur nefnt gamli stíll eftir að Viðeyjarprentsmiðja 1844fékk nýja síl, þ.e., latínuletrið.
Nánari útskýring á bls. 301, 304, 308 í bók Gunnars Karlssonar, Inngangur að miðöldum:
Skv. Stjörnu-Sævari hægir jörðin stöðugt á ferð sinni vegna þess að stór hluti af yfirborði hennar er vatn eða sjór og verða því sólarhringur og ár sífellt lengri..
Sjá enn fremur hér:
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa).