Lögmaður Halldór, höldur mætur,
Lag Ætti eg hörpu
Lag Einn var að smíða ausutetur
Lag Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858
Lögmaður Halldór, höldur mætur,herrum gifti sínar dæturOddur slapp við allar bæturþví Árni reið um daga' og nætur.
Á 8 dægrum Árni reiðtil alþingis - þar svoeftir honum Oddur beiðen ekki Herluf Daa.
Fitjaannál Oddur reitafa sínum góðurBenedikt samt betur veitbeinskeyttur og fróður.
Heimildir og samhengi
Umboðsdómurunum, J. Vind og Fr. Friis var falið dómsvald á Alþingi þetta sumar. (Þjóð)sagan segir að Oddur biskup Einarsson hafi beðið komu sonar síns, Árna, til þings, að hann bjargaði sér úr klóm ofsóknara sins, hirðstjórans Herluf Daa. Árni hafi náð að koma honum til hjálpar þegar gæðingurinn Brúnn skilað honum 17 dagleiðir á 8 dægrum úr Vopnafirði til Þingvalla.
Sjá hér neðar.
Umboðsdómararnir ráku lm. NV, Jón Sigurðsson, fyrir kvennamál og kom Halldór Ólafsson í hans stað.
Það mun hafa verið Brynjólfur biskup, fjárhaldsmaður konu sinnar, Margrétar Halldórsdóttur, sem að lm. Halldóri látnum, gifti próföstunum, frændum sínum, Torfa Jónssyni í Gaulverjabæ og Páli Björnssyni, Selárdal, systur hennar: Sigríði og Helgu, en Guðmundi Torfasyni á Keldum Valgerði.
Þá fengu þeir Vind og Friis loks drekkt Þórdísi (1608, 1612) sem Herluf Daa hafði dregið allt of lengi - barn þeirra Tómasar var þá orðið 10 ára.
Benedikt Gíslason frá Hofteigi, Fólk og saga, 20:
,,Ég varð hissa þegar ég sá hver var sannleikur þessa máls (deilu Herlufs Daa og Odds biskups). Hitt er líka undrunarefni hversu ágæta sögu þeir niðjar Odds biskups gátu búið til úr engu efni. Því eftir að hafa rannsakað þær heimildir, sem hér að lúta, og skráð þá sögu, sem þær hafa að geyma, er ekki að sjá að þar standi steinn yfir steini".
Á bls. 16 segir Benedikt, að H. Daa hafi verið lýðhyggjumaður (vinur litla mannsins). Skv. Benedikt bar H. Daa Odd engum sökum svo ekki þurfti Árni að flýta sér þess vegna, en það var hins vegar Oddur sem vildi koma Daa frá eftir að hann hafði óviljandi hindrað að hann kæmi syni sínum, Gísla, að Valþjófsstað, - segir á bls. 22 í sömu bók.
H. Daa hafði með þumalskrúfu pínt fyrrnefnda Þórdísi til sagna um barnsföður sinn. Sú aðferð varð óheimil með Jónsbók frá 1281, en leyfð í Grágás til a.m.k. til 1271 og var enn tíðkuð í evrópu. (Benedikt).
Höfundur þessarar síður heldur því fram, að frá 1611, þegar Oddur sendi tvo bestu nemendur skólans til Danmerkur að afsönnuðu slaka stöðu Skálholtsskóla hafi orðið óvild með þeim H. Daa. Árni Oddsson fór utan að tala máli Odds í tvö ár og sama gerði Daa. Kristján kóngur varð að láta annan víkja, biskup eða höfuðsmann. Ekki liti vil út fyrir kóng að lögrétta setti höfuðsmann hans af. Sendi hann þá tvo danska rannsóknardómara til þess verks. Sjá og bók Benediktgs Gíslasonar frá Hofteigi, Fólk og saga.
Oddur Eiríksson, annálsritari á Fitjum er sá sem segir frá viðskiptum Skálholtsfeðga við Daa höfuðsmann. Hann var sonarsonur Odss biskups Einarssonar. Páll Eggert Ólason lítur Odd líkum augum og Benedikt - sjá 1611.
Í sjálfstæðisbaráttunni og lengi síðan voru svona sögur hafðar til bragðbætis við sögukennslu (1916) en þagað yfir öðru (1701, 1702) og höfundur þessa pistils undir þá sök seldur meðan kenndi börnum sögu.
Reyndar Grímur Thomsen líka: Vefurbragi.arnastofnun.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þorvaldur Thoroddsen, Andvari 1901: ,,Í ...öðrum löndum er ótrúlega mikið starfað að því að gróðursetja föðurlandsást í hjörtum barnanna ...þarf ekki annað en líta í útlendar barnabækur ...þar er þjóðernistilfinningin sá möndull sem allt snýst um. ... Í þessu efni eigum vér enn margt eftir að læra".
Guðmundur Hálfdánarson í Heimtur 2009, bls. 155: ,,...þjóðernissinnuð viðhorf eins og boðuð voru í Íslandssögu Jónasar frá Hriflu hafi blásið Íslendingum kapp í kinn á mikilvægum tímamótum í sögu landsins og hún hafi á þann hátt ýtt undir framtak þeirra og dug.
Á hinn bóginn hefur verið bent á, að löngu tímabært væri að endurmeta þessa söguskoðun”.
Í Íslandssögu Jónasar er börnum innrætt þjóðernistilfinning þegar sagan stendur með flekklausum forfeðrum þeirra, sem áttu í höggi við vonda útlendinga, einkum Dani og Tyrki, sbr. 1914. Þannig varð Íslandssagan við hæfi barna.
Um miðjan níunda áratug 20. aldar birtast sagnfræðirit þeirra Haralds Gustafsson og Gísla Gunnarssonar sem endurmeta söguskoðun Jónasar Jónssonar.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Eftir að Ísland fékk konung, 1262, heyrði titillinn herra aðalsmönnum einum til og eiginkonur þeirra ávarpaðar frúr.