Tískunni fylgist Magnús með
Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829
Tískunni fylgist Magnús meðmeinar því um að kennaað sál í eigi´h'inn vondi veðsvo verði lifandi brenna.
Heimildir og samhengi
Fyrsta galdrabrenna, og var á Melaeyrum í Svarfaðardal.
Sm. Magnús Björnsson (1621) dæmdi þá Jón Rögnvaldsson, f. ~1600, á bálið fyrir að vekja upp draug sem átti að hafa gert óskunda á Urðum þar í Svarfaðardal. (E. Laxness, Ísl. saga I,161).
Galdrabrennur þekktust í evrópu frá því 1484 eftir að páfinn, Innocenzo VIII (opnast í nýjum flipa)útgaf 1484 Summis desiderantes affectibus (opnast í nýjum flipa) sem byrjaði baráttu gegn göldrum, djöfladýrkendum og gandríðandi nornum. Sá sem réð páfa til að taka þessa stefnu var Þjóðverjinn Heinrich Kramer.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Þótti þá góðverk að brenna þann sem var á valdi djöfulsins og framdi galdur með hans tilstyrk. Galdraofsóknir og brennur héldu áfram í löndum mótmælenda er sá tími rann upp.
Veðbönd djöfulsins á sálinn brunnu í eldinum að því tilskyldu að viðkomandi iðraðist. Á iðrun þess dæmda var lögð mikil áhersla og prestur hafður á staðnum til að ná henni fram. Þar með missti sá vondi tilkall til sálarinnar sem fór þá ekki til Helvítis. E.t.v. aðeins eitt dæmi hér um að það næðist ekki, sjá 1685.
Höfundur Njálu má og hafa á kaþólskum tíma litið svo á að hver sá sem brynni til bana hér á jörð slyppi þar með við hreinsunareldinn.
Sm. Magnús á Munkaþverá, lögmaður frá 1639, var faðir Vísa-Gísla, sem fjallað er um 1621.
1343 lét Skálholtsbiskup, Jón Sigurðsson, brenna nunnu frá Kirkjubæjarklaustri, sem átti að hafa selt sig Djöflinum. (Annálar).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Undir árinu 1548 má sjá í ,,Öldinn 16.", að séra Þorleifur Björnsson á Reykhólum sætti þá galdraákæru, en fékk þó aftur brauðið. Má vera að um hvítagaldur hafi verið að ræða. Oddur Gottskálksson er nefndur til sögu sem kærandi, en hann þekkti vel til í norðurevrópu.
Þegar galdraofsóknirnar byrjuðu í Allgäu í Þýskalandi 1484 var kólnandi loftslag kennt nornum, - nornaveður.
Á því kunna eldgos á Íslandi að hafa átt sökina eins og 1783. Og Kári Gautason heldur því fram í Bændablaðinu 4. nóv. 2021, bls. 18, að Heklugosið 1947 hafi valdið því frosti í kolanámum í Bretlandi og víðar, að kol urðu ekki grafin úr jörð og evrópa þá eldsneytislaus.
Kötlugos urðu um 1480 og mikil harðindi stöfuðu af gosi við norðanverðan Vatnajökul 1477, sem lengi var ranglega kennt við Kverkfjöll. Um það eru heimildir í annálum, að 1477, hétu Norðursýslungar á almættið, og/eða dýrlinga, gjöfum til fátækra sem og messum vegna ,,Kverkfjalla”-gossins þegar Jökulsá flæddi úr farvegi og spillti löndum þar sem hún rann til sjávar. Nú segja jarðfræðingar þó, að gosið hafi hjá Veiðivötnum.AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Tilvísun: Der Spiegel, Gesichte 5/2021, Hexenjagd.