Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1633
1633
1633

Ekki mátti minna nægja

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

EEkki mátti minna nægja- meðaumkunar kenni -Hund-Tyrkjanum þurfti þægjaþúsund dölum, Benni.

Glúmur Gylfason · 1633

Heimildir og samhengi

Á ,,hallærisárinu mikla" (Saga Íslands VII, 121) er Benedikt klh. Möðruvöllum Ef., Pálsson sm. Þingeyrum, Guðbrandssonar biskups, - leystur út frá Alsírskum sjóræningjum með 1.000 rd. þ.e., ~250 kýrverð (sjá 1704).
Lausnargjald Íslendinga 1636 var á bilinu 40 til á þriðja hundrað rd. fyrir hvern. Tilvísun í Sverri Kristjánsson, Ritsafn 1.

Fitjaannáll II, 124: ,,Benedikt Pálsson lærði bartskeraembætti í Hamborg, sigldi þaðan þá hann hafði útlært og vildi til Spanien en varð hertekinn ásamt skipi og mönnum af Tyrkjum og var hjá þeim 2 1/2 ár; var svo leystur af Hamborgurum og útborgaður af frændum sínum og vinum hér fyrir lítið miður en 1000 dali”.
Hjónabandi sínu lýsti Benedikt í 15 erindum og tvö þeirra birtast hér að neðan. Kona hans - þau skildu - var Sigríður stórráða Magnúsdóttir frá Sjávarborg sem fegurst þótti kvenna og fjölkunnug – sem sannast þótti 1670 þegar hún og síðari maður hennar, Jón Eggertsson, felldu Jöklubrúna frá 1625 með konstrum. Sigríður dó 1694, sjá þar.

Benedikt Pálsson: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) (sleppa auglýsingum)

Jeg veit það, að Tyrkinn er vondur,
og vistin þar kvalafull er,
en samt er hún Sigríður verri,
það sýnir reynslan mjer.

Ef Hundtyrkjann hingað nú bæri,
jeg hlypi' honum fagnandi mót;
hann mundi mig fjötra' og frelsa
frá flárri' og vondri snót.
Smella á:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fyrsta Sigríður sem nefnd var stórráða var sú sem Ólafur Tryggvason Noregskóngur rak frá sér og varð eftir það drottning Sveins tjúguskeggs, Danakonungs. Hvatti hún Svein til að fara með flota að Ólafi, sem varð, og féll Ólafur - eða hvarf - við Svoldur, eyju í Eystrasalti, árið 1000.
Smella á:
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Frá árinu 845 t.o.m. 994 eru til þýskar heimildir um ránsferðir skandinavískra víkinga þangað - segir Der Spiegel Geschichte nr. 5, 2022, bls.43-44.
Víkingar rændu bæði verðmætum og fólki, sem látið var laust gegn háu gjaldi, sem safna mátti á stóru svæði ef um æðristéttarpersónu var að ræða.
Fæstir gátu keypt sig lausa en voru boðnir upp á þrælamörkuðum og/eða enduðu þannig í víkinganýlendunum á N-Atlantshafseyjunum einkum Íslandi. Húsbændur eðluðu sig með kvenþrælum enda eru um 63% íslenskra kvenna með skosk eða írsk erfðaefni.
Í ránsferðum allt til Miðjarðarhafs, voru þúsundir slíkra norðurevrópskra gísla árlega seldar til þrælkunar í Egyptalandi, Miklagarði og Bagdad á meðan víkingaöldin stóð. Myntir grafnar úr jörð á Norðurlöndum eru meðal gagna sem styrkja þessar ályktanir Der Spiegel og heimildarmanns blaðsins, sem er forstjóri víkingasafnsins Haithabu í Schleswig, M. S. Toplak.
Allar aðfarir víkinga voru hinar sömu og þeirra sem rændu á Íslandi 1579 og 1627.

Myndir

Einnig frá árinu 1633

  • Trútt skulu gilda nú þau norm
← 1632Vel notar Gísli vígsluferð1633 →Trútt skulu gilda nú þau norm