Hollendingar fiskinn fá
Hljóðbrot0:00
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Hollendingar fiskinn fáfegnir taka í móter danskir sigla Fróni fráfarmur snidda og grjót.
Heimildir og samhengi
Sökum harðæris er veturinn 1633 til 1634, nefndur Hvítivetur í annálum, sem segja frá, að bæði fyrir ,,hallærisárið mikla",1633, sjá þar, og 1632 og allt til 1638, sjá þar, höfðu menn ekki margt handa kaupmönnum sem gjald á móti innflutningi. Um mynt þurfti vart að ræða. Við það bættist að dönsku skipin urðu nú síðbúin til Íslands og höfðu Hollendingar áður hirt það litla sem til var af kaupvöru.
Oft var Eyrarsund ísilagt á vorin sem tafði siglingar til Íslands.
Hverju sem um var að kenna þá máttu Danir nú verða sér úti um sniddu, grjót, og vatn í tunnum til kjölfestu.