Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1941
1941
1941

Tegdór reit og reri í verum

Hljóðbrot0:00

Lag Ætti eg hörpu

TTegdór reit og reri í verumað ríkisstjóra Svein vér gerumAmeríka sína sér umChurchill kominn og gengur hér um.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1941

Heimildir og samhengi

Út kom sjálfsævisaga Theodórs Friðrikssonar (1876-1948), Í verum. Hann nefndi sig Tegdór.

Vegna afskipta Breta og Bandaríkjanna hættir ríkisstjórnin við að slíta konungssambandi við Danmörk áður en sambandslögin kváðu á um (sjá 1939), en 20. maí boðar alþingi uppsögn sambandslaganna frá 1918 með 3ja ára fyrirvara og kýs Svein Björnsson (1881-1952) ríkisstjóra er fari með vald konungs. Jónas Jónsson fékk eitt atkvæði, kaus sig ekki sjálfur, - enn ekki vitað hver það gerði.

Skv. Gunnari Hall (1939) var lýðveldisstofnun með hraði gerð til þess að ná frumkvæði í því máli af Jónasi Jónssyni, sem barðist fyrir pólitísku lífi sínu með því að rita greinar í Tímann haustið 1939 sem ekki voru vinsamlegar í garð Dana og fóru þessi sinnaskipti Jónasar ekki fram hjá dönskum blöðum.

Með samþykki alþingis leysti bandarískur her þann breska af hólmi 7. júlí og hét nú vernd, en hernám áður.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þá kemur þetta: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

16. ágúst kom Churchill með tundurspilli til Reykjavíkur á leið frá viðræðum við forseta BNA, F. D. Roosvelt. Hann fór samdægurs. Fimm mánuðum síðar gerðust Bandaríkin beinir þátttakendur í styrjöldinni og lánuðu Bretum fé til að kaupa fisk af Íslendingum á því verði sem einkum skóp stríðsgróðann.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

7. júlí 1941 gerðu Íslendingar herverndarsamning við Bandaríkin. Fyrstu bandarísku hermennirnir komu svo til landsins stuttu síðar:MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1941

  • Listafólkið gerði gagn
← 1940Að Gísla ekki ægði sjór1941 →Listafólkið gerði gagn