Öræfajökull alls til vís
Öræfajökull alls til vísösku dreifir, kviku og íseldur niðri, uppi frýselfur spretta þá hann gýs.
Heimildir og samhengi
Fyrra gosið í Öræfajökli sem sögur fara af, var 1362 og eyddi byggð í Öræfum í heilan mannsaldur og var mannskæðasta gos á Íslandi.
Í gosinu 1727 fórust 3 menn. Frásögn séra Jóns Þorlákssonar (1700-1790) sem prestur var á Sandfelli í Öræfum 1727 er tekin af slóðinni: Vefurstjornufraedi.is (opnast í nýjum flipa)
,,Klukkan 9 um morguninn heyrðust 3 miklir brestir, sem báru af hinum; þeim fylgdu nokkur vatnshlaup eða gos og var hið síðasta mest, sópuðu þau brott hestum og öðrum peningi, er fyrir þeim urðu, í einu vetfangi. Þar á eftir seig sjálfur jökullinn niður á jafnsléttu, líkt og þegar bráðnum málmi er hellt úr deiglu. ...Ástandið breyttist nú enn við það að sjálfur jökullinn brauzt fram og bárust sumir jakarnir allt á sjó fram, en hinir stærri stóðu rétt við fjallsræturnar. Þessu næst fylltist loftið af eldi og ösku, með óaflátanlegum brestum og braki; var askan svo heit, að engi sást munur dags og nætur af myrkri því, er hún olli; hið eina ljós er sást, var bjarminn af eldi þeim sem upp var kominn í 5 eða 6 fjallaskorum".
Vefurtravelade.com (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)