Sína skoðun láta í ljós
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Sína skoðun láta í ljóslýðum eigi bönnumei fékk Bjarni eintómt hrósaf sínum samtíðarmönnum.
Til Skaga liggur Skúla leiðSkaftfellingar þegja' umhvort hann fremdi fróman eiðer fækkaði þar meyjum.
De var jomfru inden sysselmanden komde var alle sammen jomfru da han kommen da han gik, så var de bomde var alle sammen jomfru da han kom.
Heimildir og samhengi
Saga frá Skagfirðingum I, bls, 64: ,,Eystra bar svo til að tvær stúlkur urðu þungaðar og kenndu Skúla báðar; vann hann eið fyrir aðra en önnur var Steinunn, dóttir Bjarnar prófasts í Görðum, Jónssonar sýslumanns Þorlákssonar biskups; hugðu menn hann myndi einninn sverja fyrir hana, en þó varð það ekki. Gekk Björn prófastur nokkuð hart að honum og er svo sagt að hann treystist ei öðru en fá hennar (7.sept.1738) og sagði svo síðan að þann mann hefði hann helst óttazt og heitingar hans, en sumir ætluðu Björn prófast margkunnugan”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kölluðu fjórir sig sýslumenn þar. Sigldi Skúli þá og fékk Hegranessýslu og virðist þá strax og æ síðan hafa heillað Dani svo að hann fékk jafnan af þeim meira en um var beðið og komst upp með barneignir, barsmíðar, fjármála- bókhalds- og aðra óreiðu ásamt skuldasúpu við kóng og hélt fógetaembætti fram á níræðisaldur.
Ævisaga Sigurðar Jónssonar, Ystafelli eftir Jón son hans, bls. 15: ,,Sumarið 1738 fæddi Jórunn dóttir Þorleifs prófasts Skaftasonar (1735) sveinbarn, sem skírt var Ari. Skráður faðir sveinsins var Ólaur Þorláksson ráðsmaður í Múla. Það var ...altalað á fyrrihluta 19. aldar, að Ari væri rangfeðraður og hinn rétti faðir hans væri Skúli fógeti, stjúpsonur Þorleifs prófasts (eftir 17 ára aldur).
Sjá SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)
Svör Skúla við spurningum Landsnefndarinnar 1770 sýna að hann átti samleið með stjórninni eins og hún þá hugsaði en var í andstöðu við Ólaf Stefánsson, síðar stam. og Bjarna á Þingeyrum, sbr. hér að framan.
Upp er boðið Ísaland, 242: ,,Skúli Magnússon var á margan hátt framandi fugl í íslenskri samfélagsumræðu. Hann studdi innlenda kaupmannastétt meðan engin slík stétt var til. Hann studdi þéttbýli meðan engin þéttbýli voru til. Hann sótti stuðning sinn til stjórnarinnar í Kaupmannahöfn sem tók mark á tillögum hans vegna þess að þær endurómuðu helstu framfarahugmyndirnar sem þá voru í tísku úti í hinum stóra heimi". (1740, 1743).
Bjarni Halldórsson (1703-1773) fær Þingeyraklaustursumboð og flytur þangað frá Víðidalstungu en heldur sýslunni.
Skúli Magnússon (1711-1794 ) fær Hegranesþing, en hafði áður A-Skaftafellssýslu. Að Skaftfellingar séu manna orðvarastir hefur lengi verið haft fyrir satt.
Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar II, 394:
,,Elstur sona sr. Halldórs Árnasonar (Húsafelli) var Bjarni Halldórsson, sm. Þingeyrum, sem varð einn meðal nafnkunnustu höfðingja 18. aldar hér á landi, en eins og gengur, ekki ætíð lofaður af samtíð sinni”.
Ísl. æviskrár segja Bjarna harðlyndan, héraðsríkan, mikillátan og hafa átt í deilum við marga helstu menn landsins, en engum hafi tekist að buga hann.
Sama heimild kallar Skúla Magnússon, nú sm. í Skagafirði, þrekmikinn, harðlyndan, brögðóttan, drykkfelldan og þá svakalegan.
Saga frá Skagfirðingum I, 72: ,,Bjarni var ríklundaður og mikill fyrir sér og ei hafa sýslumenn verið héraðsríkari en þeir... Bjarni og Skúli".
Bjarni stefndi am. J. Lafrentz dauðum 1744, sem hafði sett hann úr embætti eftir að fallið hafði á hann dómsmál út af aðtekt á skjöldóttri kú. Þeim er færði Bjarna andlátsfregn þess er dæmdi, Orms Daðasonar, launaði hann með krónu - svo? - ríkisdal mun réttara. (Saga frá Skagf.).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Svör Bjarna og Skúla við spurningum Landsnefndarinnar 1770 voru algerlega andstæð:
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 238: (Bjarni var) ,,ánægður með þáverandi verslunarfyrirkomulag. Hann taldi landa sína vera allt of ósiðaða og þekkingarsnauða til að reka utanríkisverslun og fara með peningaviðskipti. ...Þar að auki taldi hann breytingar (á atvinnuháttum) vera óæskilegar. Hann óskaði að landið mætti áfram hafa sína gömlu siði og viðhalda fátækt sinni".
Sjálfsævisaga Jakobs Hálfdanarsonar, bls. 90 segir nýendurreist alþingi 1845 sömu skoðunar, sjá 1845.