Eini þjófur Árnesinga
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Eini þjófur Árnesingaútlegðina veluren helmingur allra Húnvetningahrossi' og sauðum stelur.
Heimildir og samhengi
Eyvindur Jónsson (1714- ~1783) strýkur til fjalla.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Guðni Ágústsson, þá alþingismaður, og Pálmi Jónsson fv. ráðherra, hittust á Hveravöllum í ágúst 1998 þegar þar var afhjúpaður minnisvarði um Fjalla-Eyvind að viðstöddu fjölmenni.
Hermt er að þegar Guðni í ræðu gerðist stoltur af uppruna Fjalla-Eyvindar hafi Pálmi sagt, að þarna reisi Árnesingar minnisvarða sínum eina þjófi, en sýndu Húnvetningar sínum sauðaþjófum sama sóma þá yrði vörðuð leiðin frá Kili og allt norður á Skaga. (1822).
Ágúst Jónsson, b. Hofi, Vatnsdal, segist í ævisögu, bls. 181-184 ekki leggja dóm á hvort Húnvetningar hafi verið meiri sauða- og hrossaþjófar en aðrir, en: ,,Hitt mun réttara, að Húnvetningar hafa ekki sinnt um að bera þetta orð af sér eða fela það. Þeir hafa jafnvel talið það hluta af stærð sinni og sett metnað sinn í það að ala nokkuð á orðrómnum og tekið við hann ástfóstri - svona eins og Þingeyingar um áburðinn um montið. ...Þegar litið er yfir helstu sauðaþjófnaðarmál í Húnaþingi síðustu öldina kemur í ljós að þau eru nokkuð stór í sniðum. Húnvetningar voru ekki að eltast við smámuni í þessum efnum frekar en öðrum". Síðan fjallar Ágúst um nokkur þessara mála í bókinni.
Ágúst segir og að stórbrotnasti Húnvetningur næst Gretti, Björn Eysteinsson, sem um tíma bjó því sem næst á afrétti, hafi aldrei verið ætluð hvinska.
Sjá um Björn 1886.
Minnismerkið um Höllu og Eyvind:
MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)
Vefureyvindarstofa.is (opnast í nýjum flipa)
Á blaðsíðum 264 -5 í 2. bindi Fjallkirkjunnar lýsir Gunnar Gunnarsson átakanlega handtöku og flutningi sauðaþjófa eystra, þar sem slík hvinska var svo til óþekkt. Þjófunum var ekki boðið inn fyrir dyr á viðkomustöðum, en þó færð út á hlað mjólk í skál, sem ,,þaðan í frá var aðeins notuð handa hundum".
Guðmundur Daníelsson, Dómsdagur, bls. 199: ,,Ástir í meinum, blóðskömm og sifjaspell nutu alla tíð umburðarlyndis almennings, þjófurin uppskar fjandskap og lítilsvirðingu. Nema hann hæfist upp í að gerst útilegumaður og kæmist á handahlaupum upp á jökul undan þjónum réttvísinnar ...þá varð hann samstundis mikilmenni".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)