Skúli ferli í friði lauk
Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838
Skúli ferli í friði laukfornum lokið brýnumhaus af kóngi frönskum fauken fógeti hélt sínum.
Heimildir og samhengi
Skúli Magnússon (1711-1794) fékk að segja af sér fógetaembætti 82ja ára.
Úr ritgerð Ásgeirs Jónssonar: HeimildHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)
,,Skúli Magnússon var sannarlega þrekmikill maður en samt tókst honum ekki að fullu ætlunarverk sitt, að draga þjóðina með sínu eigin handafli fram úr myrkri miðalda. Myrkrið var reyndar heldökkt á þessum tíma, átjándu öldinni, þegar landsmenn sátu í vesöld og örbirgð. Það varð margt til þess að vinna á móti fógetanum, t.d. dönsk verslunareinokun, en þeir sem fastast unnu á móti voru þó hans eigin landar". (1794).
Franskir byltingarmenn settu Loðvík 16. undir fallöxina þetta ár, en ofurlaunafógetinn – með tvöhundruðföld laun póstsins (1792) - dó skuldugur, sjá1794, sem þó má kenna tengdasonum hans að stórum hluta.
Sjá umsögn Torfa Hjaltalín Stefánssonar í Sögu Biskupsstólanna og Dómkirkjan í Reykjavík I, bls. 96 eftir Þóri Stephensen.
Fallöxin: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)