Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1819
1819
1819

Um Jón gekk jafnan rykt

Hljóðbrot0:00

Lag Leslie Sarony - Rhymes (1932)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

UUm Jón gekk jafnan ryktað jómfrúm yki þykktá Bæsá bjóá Bæsá dóá Bæsá orkti dikt.

Glúmur Gylfason · 1819

Heimildir og samhengi

+ séra Jón þjóðskáld Þorláksson (f. 1744), sem þýddi m.a. Paradísarmissi enska skáldsins Johns Milton (1608-1674).
Jón orti afburða vel, var fyrstur nefndur þjóðskáld, en nú er þó aðeins einn sálmur eftir hann í Sálmabókinni frá 1997, Sjá nú er liðin sumartíð, sem hann orti eftir að missti prestinn í fyrra skiptið, 1770. Efnistökin gætu sagt fleira en eitt.

Sjá, nú er liðin sumartíð
hverrar ljómi,
blíðu blómi,
hruman áður hressti lýð.

Úr Sálmabókinni 2022 er hann horfinn, vék fyrir veraldlegum kveðskap. Því skal hann birtur hér að lokum.

Annað dæmi um snilld Jóns, en hann dró ekki úr fátækt sinni, og hann var fyrr tengdasonur Boga ríka Benediktssonar í Hrappsey, en bjó æ við þröngan kost eftir að skildi við konuna. Fótgangandi fór hann þá frá Breiðafirði til Öxnadals 1788.

,,Fátæktin var mín fylgikona
frá því eg kom í þennan heim
við höfum lafað saman svona
sjötíu vetur fátt í tveim
en hvort við skiljum nú héðan af
hann veit er okkur saman gaf".

Sjá og 1748, 1773, 1788, 1801, 1833.

Árin 1801og 1833 kemur fram hvaða erindi myndin af sálmabókinni 1801 á hingað.
Jón missti hempuna tvisvar fyrir barneignabrot, fékk hana jafn oft aftur og þótti vel sloppið að ekki yrði oftar. Orti sjálfur vísur um a.m.k. tvö börn sem bentu á að hann væri faðir þeirra.
Sverrir Kristjánsson, Gamlar slóðir, bls. 38: ,,það var engin furða um svo ...frægan kvennamann sem Jón Þorláksson var, að honum væri kenndur hver sá krói sem undir kom í sókninni og vafi lék á um faðernið."
Bægisá varð Bæsá í munni fólks og ritað svo í annálum.

Ævisögu séra Jóns á Bægisá hefur ritað séra Sigurður Stefánsson vígslubiskup á Möðruvöllum.
Um hana ritaði Helgi Sæmundsson gagnrýni í Alþýðublaðið 1963:HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurhuni.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fleiri smellnar vísur og umsögn um skáldið:
Vefurhuni.is (opnast í nýjum flipa)

Sjá, nú er liðin sumartíð,
hverrar ljómi,
blíðu blómi,
hruman áður hressti lýð.

Nú sjáum vér, hvar fastan fór
allt það hefur, gæfan gefur.
Gráts er hér og gleðimót.

Óðfluga á tímans vagni vær
öllum stundum áfram skundum,
enginn honum aftrað fær.

Þannig smámsaman líður leið,
bát siglandi ber að landi
bára hver, sem yfir skreið.

Hver mæðustund, sem framhjá fer,
ei að hendi aftur vendir,
styttir svo það eftir er.

Misseraskipti þessi því
öðrum nær oss æðri færa,
þá tíminn breytist eilífð í.

Afmáluð sýnir, fölnuð fold
dauðans spor á vegum vorum,
eins því visnar hey og hold.

Upprisu sumar ímynd ber,
Guðs því kraftur orkar, aftur
að nýjum gróða verðum vér.

Svo lengi Guð oss ævi ann,
tímann brúkum, líka lúkum
lofgjörð þeim, sem gaf oss hann.

Lífernið illt um liðna tíð
klökkir játum, glæpi grátum,
Guðs afbiðjum hefndarstríð.

Þökkum og ljúfri þiggjum önd
gáfur þær, oss gjörði færa
sumarið frá Herrans hönd.

Komandi tökum vetri vel.
Beiskt og sætt oss ætíð ætti
eins kært vera, líf og hel.

Svo þig úr garði syngjum nú,
sumartíð, þótt langt um líði,
vorra húsa vitjir þú.

Þann er réð senda þig af hæð,
oss vanfæra að endurnæra,
lofi sérhver lífsins æð.

Jón Þorláksson


Myndir

← 1818Bækur gaf til bókasafns1820 →Illum tungum tamt ei varð