Á hvalfjöru illa á sér sat h'ann
Lag Hilf, Herr Jesu, lass gel - EGB 61
Á hvalfjöru illa á sér sat h'annaf því Friðrik réð að hata' h'annen skáldið, Rósa, mikils mat h'annmeð h'enni börnin Ólafs gat h'ann.Undir stýri sat h'ann Satanþá Sigga' og þau Agnes drápu' h'ann,- Natan.
Brenndu sér að baki brýrbreiða- gengu veginnen skyldu þeir hittast þessir þrírþarna hinum megin?
Fjárdráps-Pétur Friðrik vófylgdi á eftir Natanen verða kann h´onum um og óef hann mætir Satan.
Tíðindum sem urðu í árundan frekt vér klögumtónskáldið Schubert nú er nárNatan réðu af dögum .
f
Heimildir og samhengi
Natan Ketilsson f. 1792, myrtur aðfararnótt 14. mars 1828 á Illugasöðum á Vatnsnesi. Hann var heppinn (grasa)læknir og haldinn eiga peninga í fórum sínum.
Þessa nótt gisti að Natans Fjárdráps-Pétur, sem var þar staddur í sendiför eftir meðölum til Natans. Honum var og þarna styttur aldur í svefni. Nánar um Pétur þennan og viðurnefni hans má lesa í umfjölluns Kristjáns B. Jónassonar í Bændablaðinu 12. júní 2025, bls. 50.
Árb. Espólíns: ,,Þeim Friðrik Sigurðssyni (1810-12. jan. 1830) hafdi borit nokkut í milli ádr um kvennamál, ok rédu þær þat med Fridrik, at drepa Nathan, en hann hugdi til fjár ásamt, sem mörgum var þá títt þar í sýslu".
Að þeim hafi áður lent saman á hvalfjöru er haft eftir Gísla Konráðssyni og tekur Guðlaugur Guðmundsson undir það á bls. 46 í Sagnfræðilegu skáldriti: ,,Enginn má undan líta". Heimildin er sögð handrit frá Tómasi Guðmundssyni á Þverá í Vesturhópi.
Einar Laxness: Íslands saga II, 165: ,,Friðrik hafði lent í útistöðum við Natan haustið áður og úr orðið mikill fjandskapur. Hann hafði í hyggju að myrða Natan og komast yfir fjármuni hans”.
Allt að 3 börn Skáld-Rósu Guðmundsdóttur (1795-1855), sem kennd voru manni hennar, Ólafi Ásmundssyni (1791-1843), eru talin eiga Natan að föður.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Agnes Magnúsdóttir (1795-12. jan. 1830) og unglingurinn Sigríður Guðmundsdóttir voru með Friðriki að drápi þeirra Natans Ketilssonar og Péturs Jónssonar (f. 1791).
NB: 4. des. 2014 birti Helga Kress í fyrirlestri í Þjóðminjasafni athugun sína á Natansmálum. Hún sagði Natan hafa áður notfært sér ,,húsbóndarétt” og ,,skammað" stúlkurnar, þ.e., nauðgað þeim. Það orðalag noti Agnes í framburði sínum, en tuttugustualdarmönnum hafi yfirsést merking orðsins.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)