Þegar Fjallvegafélagar Bjarna
Lag Ökuljóð, rússneskt þjóðlag
Þegar Fjallvegafélagar Bjarnafengu vörður upp hlaðið af grjótslysum óþarfa vildu með varnavega- þótti hin mesta af bót.
Þó að vegina enn ekki ökumeykur margur þar sparar sinn fótþökk sé pálum og hrífum og hökumhversu komið er nú Leggjabrjót.
Heimildir og samhengi
Þegar ábendingar Bjarna (1785-1841) Thorarensen um vegabætur hlutu ekki undirtektir kostaði hann þær 1820-1822 úr eigin vasa á Skúlaskeiði á Kaldadal – kennt við langafa og alnafna Skúla fógeta Magnússonar. (Sjá 1711).
Á afmælisdegi konungs 28. janúar 1831 stofnaði hann, ásamt Þorgrími Tómassyni á Bessastöðum, Fjallvegafjelagið, sem hlóð það ár 110 vörður á Holtavörðuheiði og ruddi grjóti úr vegum á Þorvaldshálsi, í Hallmundarhrauni að Surtshelli og allt að Hólmakvísl sunnan Sandfells, og Vatnahjalli ruddur það ár. Vegur ruddur 1833 um Grímstunguheiði, hlóðu sæluhús í Fornahvammi og leituðu leiðar úr Múlasýslum til Suðurlands.
Tilskipun Landsnefndarinnar fyrri frá 1776 um vörður komst þá þar með í framkvæmd. Kostnaður var greiddur af frjálsum framlögum þar sem kóngur og prinsarnir, þ.e. tveir næstu kóngar, gáfu mest, 650 rd. á 5 árum, en þá lognaðist félagið út af enda Bjarni fluttur norður.
Þá á Bjarni að hafa gengist fyrir nýrri brú á Jökulsá á Dal 1835 segir Indriði Einarsson: ,,Séð og lifað”, bls. 199.
Aðrar heimildir: Árbók Ferðafélagsins 1931, bls. 47;
Saga frá Skagfirðingum III, 163.
,,1861 kom út fyrsti skipulegi lagabálkur um vegamál. Samkvæmt honum urðu til þjóðvegir og aukavegir auk þess sem sveitarsjóðum var gert skylt að greiða árlega tiltekinn skatt af hverjum verkfærum karlmanni til vegagerðar”.
Saga Akureyrar I, 167, Jón Hjaltason.